Kæru félagar.
Ég heiti Auður Lilja Erlingsdóttir og er 29. ára og sækist eftir 2-3 sæti í þessu forvali.
Það að ég sækist eftir ábyrgðarstöðu á vegum vinstrihreyfingarinnar er ekkert nýtt á nálinni. Ég hef áður gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna. Ég gegndi því ótrúlega skemmtilega embætti að vera formaður Ungra vinstri grænna í tvö ár, lét af þeim störfum á landsfundi hreyfingarinnar sunnudaginn 5. október . Daginn eftir fór allt í bál og brand og Geir Hilmar birtist á skjánum á heimili mínum og bað Guð að blessa Ísland. Ég leyfi ykkur að meta hvort það var tilviljun ein.
Ég var á yfirstandandi kjörtímabil fyrsti varaþingmaður VG í Reykjavíkurkjördæmi syðra, leysti Kolbrúnu Halldórsdóttur og Álfheiði Ingadóttur af og tók sæti á þingi í tvígang. Mestur tími minn á þingi fór í að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og þingsályktunartillögu um úttekt á kjörum og réttindum námsmanna en auk þess spurði ég Björn Bjarnason út í hugsanlega notkun lögreglu á rafbyssum (sem ég þakka fyrir að ekki hafi verið komin á er mótmælin við Alþingishúsið stóðu sem hæðst).
Ástæða þess að ég er að bjóða mig fram í þessu forvali er að ég hræðist það meira en orð geta lýst að þær aðstæður sem eru uppi í samfélaginu verði til þess, ef það verði ekki rétt fólk við völd eftir kosningar, að tækifærið verði nýtt til þess að vega að grundvallarstoðunum í íslensku samfélagi. Ég vil leggja mitt af mörkum til að passa að svo verði ekki. Ég vil búa í samfélagi þar sem að einstaklingar þurfa ekki að óttast framtíðina heldur geti allir verið i fullri vissu að ef eitthvað kemur upp á, hvort sem það eru slys, veikindi eða náttúruhamfarir að hér sé til staðar þéttofið öryggisnet sem dragi úr fallinu, grípi okkur og hjálpi okkur á fætur. Þetta vil ég jafnvel þó ég þurfi að borga dágóðan hluta af af launum mínum í skatta til að fjármagna velferðina. Ég vil samfélag þar sem fólk þarf ekki að eiga ríka foreldra til að fá almennilega menntun eða læknisþjónustu.
Ég legg mikla áherslu á að þó að íslenskt samfélag hafi færst nokkra áratugi aftur í tímann efnahaglega séð stöndum við vörð um að svo fari ekki með aðra málaflokka eins og náttúruvernd og kvenfrelsi. Ég sætti mig ekki við að konur verði sendar aftur heim til að rýma til fyrir karlmönnum á vinnumarkaði og ég sætti mig ekki við að náttúruperlum verði fórnað fyrir skammtímagróða og nokkur störf í stóriðju. Við getum betur!
Í kosningabaráttum fyrri ára varð ýmsum tíðrætt um að vinstri menn kynnu ekki að fara með peninga. Nú hefur verið sannað, hverjir kunni ekki að fara með peninga og eigi að halda sig fjarri efnahagsstjórnun Íslands. Nú getum við sýnt að við kunnum svo sannarlega að forgangsraða og spara á réttum stöðum, án þess að vega að undirstöðum íslensks samfélags. Við getum sparað með því að leggja niður Varnarmálastofnun, ganga úr NATO, hætta heræfingum í íslenskri lögsögu, enda á Ísland að vera herlaust land, friðlýst fyrir efna- og kjarnavopnum. Öryggi í samfélaginu í dag snýst líka ekki um að vernda okkur fyrir sprengjuflugvélum og kafbátum heldur að fólk geti fætt sig og klætt, lifað mannsæmandi lífi og búið við öflugt velferðarkerfi.
Kæru félagar. Ég bið um stuðning ykkar í komandi forvali. Ég vil vera í framvarðarsveit Vinstri grænna, því ég treysti engum öðrum en okkur til að standa vörð um hagsmuni almennings í framtíðinni. Ég veit ég hef þar mikið fram að færa og treysti mér til að standa undir þeirri ábyrgð.