Apr 24

Nú eru örfáir dagar í kosningar. Það er frekar furðulegt að standa í kosningabaráttu á þessum erfiðu tímum. Kosningabaráttan er rétt nýhafin en samt eru flestir löngu komnir með upp í kok af stjórnmálum því umræða um þau, stöðu þjóðarbúsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,  stýrivexti, o.s.frv. hefur verið alls ráðandi síðan hrunið varð í október.

Frá byrjun október létu stjórnvöld óánægju þegna sinna sem vind um eyru þjóta. Stjórnvöld þóttust of upptekin við að bjarga málunum til að geta átt samráð við þjóðina, enda virtist mikil óvissa ríkja um það meðal sumra ráðamanna hver þjóðin væri eða hver gæti yfir höfuð talað í nafni hennar. Í huga almennings sem barði taktinn fyrir utan Alþingi var þó ljóst að stjórnvöld gátu ekki lengur talað í nafni þjóðarinnar.

Að endingu sprakk stjórnin. Vinstri græn, flokkurinn sem gjarnan var brigslað um að vera sífellt á móti öllu,  komst í minnihlutastjórn með Samfylkingunni og hefur eytt síðustu áttatíu dögum í að bjarga því sem bjargað verður fyrir kosningar.

Fólkið í flokknum sem ávallt var á móti - á móti ruglinu, ofþenslunni, stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna, þessari brjáluðu neyslu og  öllu því sem á endanum kom samfélaginu í þrot hefði auðveldlega getað fallið í þá gryfju í þessari kosningabaráttu að eyða öllum sínum tíma í að rölta um bæinn að segja„I told you so“.  Hins vegar væri það ekkert sérlega uppbyggileg pólitík og sem betur fer snýst stjórnmálasýn Vinstri grænna ekki um að horfa sífellt í baksýnisspegilinn. Vinstri græn pólitík er nefnilega pólitík framtíðarinnar, sýn á það hvernig samfélag við viljum byggja upp og búa í.

Það eru erfiðir tímar framundan og því miður er engin galdralausn í boði. Það sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð getur hins vegar boðið upp á er heiðarleiki og ábyrgð. Við ætlum okkur hér eftir sem hingað til að koma hreint fram, fela ekkert og berjast fyrir félagslegu réttlæti, velferð, friði, umhverfisvernd og kvenfrelsi.

Spurningin er sú, hvaða flokk treystum við til að gæta hagsmuna okkar í gegn um þessar þrengingar?  Mitt svar er á hreinu. Mætum á kjörstað, kjósum Vinstri græn og gefum Sjálfstæðisflokknum og hans gildum langt frí frá valdasetu. 18 ár er svo miklu meira en nóg.

Greinin birtist 24. apríl 2009 á heimasíðu Ungra Vinstri Grænna

icon1 Auður Lilja | icon2 Greinasafn, Stjórnmál, VG | icon4 04 24th, 2009| icon3No Comments »
Apr 23

Þessir síðustu dagar í kosningabaráttunni hafa verið ótrúlega skemmtilegir. Ég hef verið á þreytingi milli vinnustaða og staðið vaktina í verslunarmiðstöðum eða kosningamiðstöðinni þess á milli. Móttökurnar hafa hreint út sagt farið fram úr öllum mínum björtustu vonum.

Í gær eyddi ég t.d. rúmum klukkutíma í stjórnmálafræðitíma í FB að spjalla við nemendur um stefnumál VG, stjórnmálaástandið o.fl. Það var ótrúlega gaman. Nemarnir voru klárir, beyttir og skemmtilegir og ég gekk út með  ferskar hugmyndir og jákvæðari í garð framtíðarinnar. Áður haðfi ég farið í  Vodafone þar sem hefur myndast skemmtileg stemning í matsalnum en þau hafa boðið stjórnmálaflokkunum til sín, afhent þeim míkrafón og spurt svo fulltrúa flokkanna spjörunum úr.

Morgunin byrjaði í félagsmiðstöðvunum Hæðargarði og Gerðubergi þar sem ég fylgdist með handavinnu og fékk að stunda dansleikfimi og endaði í Kringlunni þar sem ég dreifði áróðri og umhverfisvænum taupokum við góðar undirtektir.

Í kvöld eru svo stórtónleikar á NASA  Fram koma Ellen Kristjánsdóttir, Klassart, Ragnar Sólberg, Elín Eyþórs ásamt bandi, Hljómsveitin Pikknikk, Blazac og Lúllimon, Villi Naglbítur, Agent Fresco og Dr. Spock auk VG bandsins Ekkert kjaftæði. Frítt inn og allir mæta.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 23rd, 2009| icon3No Comments »
Apr 20

Þetta blogg mitt hefur verið í hálfgerðu lamasessi undanfarið.  Það þýðir þó ekki að ég hafi verið í afslöppun. Þvert á móti hefur verið nóg að gera.

Ég er komin í launalaust leyfi frá vinnu til að sinna kosningabaráttunni á lokasprettinum. Ég nýti tímann að sjálfsögðu mjög vel. Fór t.d. með nokkrum fulltrúum UVG í ferðalag í nokkra daga til að ræða við framhaldsskólanema víðs vegar um landið. Það var ótrúlega gaman en ferðasagan birtist á vinstri.is.

Næstu daga mun allur tími fara í að  svara spurningum, taka símtöl og sinna gestum og gangandi í kosningamiðstöðinni að Tryggvagötu 11 en við erum líka á fullu í að heimsækja vinnustaði og ræða um stjórnmálin. 

Það er líka ekki leiðinlegt að vera í kosningabaráttu þegar undirtektirnar eru svona!

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál, VG | icon4 04 20th, 2009| icon3No Comments »
Apr 2

Lánasjóður íslenskra námsmanna gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Sjóðurinn er tæki samfélagsins til að greiða götu fólks til menntunar og jafna aðstöðu til fjölbreytts náms. Tæki til að hvetja fólk til náms og styðja við bakið á því.

LÍN er þó ekki óháð tíma og rúmi heldur þarf sjóðurinn, ef hann á að geta sinnt hlutverki sínu sem skyldi - þ.e. því hlutverki að tryggja jafnrétti til náms að vera hluti af miklu stærri heild, hinu íslenska menntakerfi. Því ef grunnurinn er óstöðugur getur verið erfitt að byggja ofan á hann.

Strax í leik- og grunnskóla byrjar mismunun í íslensku menntakerfi. Það er  ólíðandi að öllum börnum standi ekki til boða ókeypis máltíðir yfir skóladaginn í grunnskólum landsins. Það er líka óréttlátt að tónlistarkennsla og íþróttaiðkun geti verið forréttindi þeirra barna sem eiga efnameiri foreldra í stað þess að vera á allra færi. Hvers konar fordæmi eru það sem skapast þegar foreldri sér sig knúið til að draga úr áhuga barn síns til að stunda íþróttir einfaldlega vegna þess að ekki eru til fjármunir á heimilinu? Tónlistarnám, íþróttaiðkun og heitur matur í hádeginu eiga ekki að vera forréttindi þeirra barna sem eiga efnaða foreldra, heldur sjálfsögð réttindi allra barna. Alveg eins og að háskólanám á ekki að forréttindi heldur sjálfsögð réttindi.

En er lánasjóður íslenskra námsmanna að ná að sinna hlutverki sínu sem skyldi? Er kerfið nægilega gott? Ég held því miður að flestir hér inni segi nei og geta nefnt ýmislegt sem mætti betur fara. Flest þau atriði tengjast því sennilega að sjóðurinn hefur ekki úr nægilegu fjármagni að spila. Það vantar nefnilega ekki viljann hjá stjórn LÍN eða starfsfólki sjóðsins að gera vel við námsmenn.

Þarna erum við komin að kjarna vandamálsins sem við stöndum frammi fyrir í dag. Því að þrátt fyrir allt, þrátt fyrir allar fagrar hugsjónir, mikinn metnað og velvilja, er hér kreppa. Og hvað gerum við þá?

Nú stendur stjórn LÍN til að mynda frammi fyrir því að eiga að endurskoða úthlutunarreglurnar sjóðsins en um leið spara miljarð.  Á sama tíma og sjóðurinn hefur minna fjármagn en áður til að spila úr er ástandið á atvinnumarkaðnum hræðilegt. Atvinnuleysi er mjög mikið og margir hafa bent á þá leið að atvinnulaust fólk ætti að geta nýtt tækifærið og stundað nám, - byggt sig upp.

Það er hins vegar ekki mjög auðvelt fyrir fólk að velja það að hefja nám þegar námslán eru um 50.000 krónum lægri en atvinnuleysisbætur. Fólk þarf jú að lifa af, sjá fyrir sjálfum sér og heilu fjölskyldunum.

Þarna held ég að okkar stærstu sóknarfæri séu. Eins og námslán eru hugsuð í dag er gert ráð fyrir að hægt sé að stunda vinnu með námi, að minnsta kosti yfir sumarið helst allan veturinn með námi. Nú er staðan hins vegar allt önnur. Ástandið á vinnumarkaðinum gerir það að verkum að þessi forsenda er brotin. Auðvelt er að áætla það að erfiðara verði fyrir námsmenn að fá vinnu í sumar, hvað þá með skóla næsta vetur. Þetta gerir það að verkum að stúdentar koma til með að þurfa að treysta nær eingöngu á námslán sér til framfærslu. Því þarf að mínu mati að hækka grunnframfærslu námsmanna eins og mögulegt er. Það er hins vegar því miður ekki hægt vegna stöðu LÍN nema að á móti komi sparnaður hvað annað varðar t.d. hækkun á tekjuskerðingarhlutfallinu.

Ég kýs þó að kalla áherslu á hækkun grunnframfærslu þó að til komi hærra skerðingarhlutfall ákveðið sóknarfæri því að með slíkri breytingu á nálgun námslána, þ.e. að þau séu ekki hugsuð sem hluti af mánaðarframfærslu á móti  launum gætum við líka LOKSINS náð að koma í gegn hugarfarsbreytingu sem mér hefur þótt vanta á hér á landi hingað til, þ.e. sú staðreynd að NÁM ER FULL VINNA. 

Þó að Vinstri Græn, sem ég tala fyrir hér í dag, gangi til kosninga í kreppu jafnt og allir aðrir flokkar er forgangsröðun okkar skýr. Við viljum standa vörð um menntakerfið, heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið. Þegar þrengir að er þörf á því sem aldrei fyrr. Auðvitað þarf að spara á öllum stöðum, það hlýtur að vera svo þegar um er að ræða 150 miljarða halla á ríkissjóð. Spyrjið ykkur bara að því í kjörklefanum, hverjum þið treystið best til að spara en hlúa um leið að grunnstoðum samfélagsins. Ég veit hverjum ég treysti best.

icon1 Auður Lilja | icon2 LÍN, Stjórnmál, VG | icon4 04 2nd, 2009| icon31 Comment »