Þetta blogg mitt hefur verið í hálfgerðu lamasessi undanfarið. Það þýðir þó ekki að ég hafi verið í afslöppun. Þvert á móti hefur verið nóg að gera.
Ég er komin í launalaust leyfi frá vinnu til að sinna kosningabaráttunni á lokasprettinum. Ég nýti tímann að sjálfsögðu mjög vel. Fór t.d. með nokkrum fulltrúum UVG í ferðalag í nokkra daga til að ræða við framhaldsskólanema víðs vegar um landið. Það var ótrúlega gaman en ferðasagan birtist á vinstri.is.
Næstu daga mun allur tími fara í að svara spurningum, taka símtöl og sinna gestum og gangandi í kosningamiðstöðinni að Tryggvagötu 11 en við erum líka á fullu í að heimsækja vinnustaði og ræða um stjórnmálin.
Það er líka ekki leiðinlegt að vera í kosningabaráttu þegar undirtektirnar eru svona!