Þessir síðustu dagar í kosningabaráttunni hafa verið ótrúlega skemmtilegir. Ég hef verið á þreytingi milli vinnustaða og staðið vaktina í verslunarmiðstöðum eða kosningamiðstöðinni þess á milli. Móttökurnar hafa hreint út sagt farið fram úr öllum mínum björtustu vonum.
Í gær eyddi ég t.d. rúmum klukkutíma í stjórnmálafræðitíma í FB að spjalla við nemendur um stefnumál VG, stjórnmálaástandið o.fl. Það var ótrúlega gaman. Nemarnir voru klárir, beyttir og skemmtilegir og ég gekk út með ferskar hugmyndir og jákvæðari í garð framtíðarinnar. Áður haðfi ég farið í Vodafone þar sem hefur myndast skemmtileg stemning í matsalnum en þau hafa boðið stjórnmálaflokkunum til sín, afhent þeim míkrafón og spurt svo fulltrúa flokkanna spjörunum úr.
Morgunin byrjaði í félagsmiðstöðvunum Hæðargarði og Gerðubergi þar sem ég fylgdist með handavinnu og fékk að stunda dansleikfimi og endaði í Kringlunni þar sem ég dreifði áróðri og umhverfisvænum taupokum við góðar undirtektir.
Í kvöld eru svo stórtónleikar á NASA Fram koma Ellen Kristjánsdóttir, Klassart, Ragnar Sólberg, Elín Eyþórs ásamt bandi, Hljómsveitin Pikknikk, Blazac og Lúllimon, Villi Naglbítur, Agent Fresco og Dr. Spock auk VG bandsins Ekkert kjaftæði. Frítt inn og allir mæta.