Fyrir framtíðina

Nú eru örfáir dagar í kosningar. Það er frekar furðulegt að standa í kosningabaráttu á þessum erfiðu tímum. Kosningabaráttan er rétt nýhafin en samt eru flestir löngu komnir með upp í kok af stjórnmálum því umræða um þau, stöðu þjóðarbúsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,  stýrivexti, o.s.frv. hefur verið alls ráðandi síðan hrunið varð í október.

Frá byrjun október létu stjórnvöld óánægju þegna sinna sem vind um eyru þjóta. Stjórnvöld þóttust of upptekin við að bjarga málunum til að geta átt samráð við þjóðina, enda virtist mikil óvissa ríkja um það meðal sumra ráðamanna hver þjóðin væri eða hver gæti yfir höfuð talað í nafni hennar. Í huga almennings sem barði taktinn fyrir utan Alþingi var þó ljóst að stjórnvöld gátu ekki lengur talað í nafni þjóðarinnar.

Að endingu sprakk stjórnin. Vinstri græn, flokkurinn sem gjarnan var brigslað um að vera sífellt á móti öllu,  komst í minnihlutastjórn með Samfylkingunni og hefur eytt síðustu áttatíu dögum í að bjarga því sem bjargað verður fyrir kosningar.

Fólkið í flokknum sem ávallt var á móti - á móti ruglinu, ofþenslunni, stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna, þessari brjáluðu neyslu og  öllu því sem á endanum kom samfélaginu í þrot hefði auðveldlega getað fallið í þá gryfju í þessari kosningabaráttu að eyða öllum sínum tíma í að rölta um bæinn að segja„I told you so“.  Hins vegar væri það ekkert sérlega uppbyggileg pólitík og sem betur fer snýst stjórnmálasýn Vinstri grænna ekki um að horfa sífellt í baksýnisspegilinn. Vinstri græn pólitík er nefnilega pólitík framtíðarinnar, sýn á það hvernig samfélag við viljum byggja upp og búa í.

Það eru erfiðir tímar framundan og því miður er engin galdralausn í boði. Það sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð getur hins vegar boðið upp á er heiðarleiki og ábyrgð. Við ætlum okkur hér eftir sem hingað til að koma hreint fram, fela ekkert og berjast fyrir félagslegu réttlæti, velferð, friði, umhverfisvernd og kvenfrelsi.

Spurningin er sú, hvaða flokk treystum við til að gæta hagsmuna okkar í gegn um þessar þrengingar?  Mitt svar er á hreinu. Mætum á kjörstað, kjósum Vinstri græn og gefum Sjálfstæðisflokknum og hans gildum langt frí frá valdasetu. 18 ár er svo miklu meira en nóg.

Greinin birtist 24. apríl 2009 á heimasíðu Ungra Vinstri Grænna

Comments are closed.