Örstutt ræða á flokksráðsfundi

Steingrímur J. Sigfússon byrjaði erindi sitt á því að leggja út frá spurningunni  - Hvernig finnst okkur að myndin af okkur Íslendingum eigi að vera? Mig langar að nýta þetta sjónarhorn hans með því að spyrja ykku- Hvernig finnst ykkur að myndin af okkur, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði eigi að vera?

Eftir allt of langa setu nýfrjálshyggju og hægri manna. Eftir áratuga sóðaskap, græðgi og valdabaráttu þar sem hver maður (karlmaður) reyndi að skara eld að eigin köku tók ríkisstjórn okkar við. Ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingarinnar.

Í umboði kjósenda tóku þessir flokkar að sér að taka til. Ég verð að segja að mér finnst ansi vel að verki staðið á skömmum tíma. Fulltrúar okkar á þingi hafa unnið þrekvirki, lagt nótt við dag í að sópa saman brotin, heyja varnarbaráttu eða jafnvel stórbæta hag hópa í samfélaginu líkt og Katrín Jakobsdóttir gerði með hækkun grunnframfærslu námslána.

Því miður hafa öll þau góðu mál sem við höfum náð fram ekki fengið athygli sem skyldi. Okkar góðu mál hafa fallið í skuggann af eilífum innanflokkserjum sem helst virðast vera háðar í fjölmiðlum. Sú orka sem við eigum að vera að nýta til að koma til móts við þarfir Íslendinga á þessum tvísýnu tímum hefur farið í að slökkva elda sem við sjálf erum búin að kveikja.

Af hverju eyðum við ekki tíma okkar í að slökkva þá elda sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn kveiktu? Og að sjálfsögðu að bjarga heiminum í leiðinni.

Comments are closed.