Að loknu forvali

Ég fór sátt að sofa í gær. Félagar í VG hafa sett saman sterkan lista sem vonandi skilar fjölda atkvæða í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Ég studdi sérstaklega við bakið á tveimur öflugum konum, Sóley Tómasdóttur og Elínu Sigurðardóttur. Þær komu báðar mjög vel út.

Sóley hreppti 1. sætið og mun leiða þennan öfluga lista félaga úr VG í kosningum í vor. Sóley er að mínu mati vaxandi stjórnmálakona sem hefur sýnt og sannað að hún er með hjartað á réttum stað og vel treystandi til góðra verka.

Elín endaði í 4. sæti á eftir hástökkvaranum Líf Magneudóttur. Elín sem stefndi á 3-4 sæti má vel við una. Ég hef starfað mjög mikið með Elínu, sérstaklega í ungliðahreyfingunni, og hef mjög góða reynslu af því samstarfi. Elín er kraftmikil, öflug og réttsýn. Berst fyrir þeim sem minna mega sín og ég hlakka til að fylgjast með henni í pólitíkinni á komandi árum.

Listinn í heild sinni er flottur og öflugur.

Sóley Tómasdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Líf Magneudóttir
Elín Sigurðardóttir
Davíð Stefánsson
Herman Valsson

og næst inn væri ungliðinn Snærós Sindradóttir, formaður UVG í Reykjavík.

One Response

  1. Elín Sigurðardóttir Says:

    Takk fyrir þessi fögru orð í minn garð. Ég mun hér eftir sem hingað til vinna fyrir félagslegu réttlæti, kvenfrelsi og umhverfisvernd. Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem framundan eru. Hjartað slær vinstra megin- það verður vinstri-grænt vor í Reykjavík!