Mar 23

Það var ansi merkilegur leiðarinn í Fréttablaðinu í dag. Þar var agnúast út í Vinstrihreyfinguna - Grænt framboð fyrir að voga sér að láta hugmyndafræði sína stjórna ákvarðanatöku sinni. Nú veit ég ekki hvernig ritstjóri Fréttablaðsins tekur almennt ákvarðanir en ég get einhverra hluta vegna ekki talið það slæmt að fylgja hugmyndafræði sinni. Að vísu finnst mér hann eilítið tala í hringi því hann er raunar bæði að halda fram að VG fylgi hugmyndafræði sinni og að hugmyndafræði VG ætti í raun ekki að banna starfssemi ECA Programs því það sé ekki hernaðarstarfsemi.

Að reyna að rökstyðja að ECA Programs sé ekki hernaðarstarfssemi vegna þess að orustuþoturnar bera ekki vopn er eiginlega bara hlægilegt. Ég endurtek orustuþotur! Orustuþotur ætlaðar til heræfinga og þjálfunar hermanna.

Nóg af þessum leiðara. Dagurinn í dag er nefnilega merkilegur fyrir fleira en heimskuleg skrif, þó nóg hafi verið af þeim í dag. Í dag var nefnilega nektardans bannaður á Íslandi. Varðhundar þess sjálfsagða réttar karlmanna að kaupa sér konur hafa að sjálfsögðu risið upp og kvarta yfir að Alþingismenn verji ekki málstaðinn. Eða eins og Geiri á Goldfingar orðaði það:

“Mér finnst þetta bölvaðar kvígur sem láta kjósa sig á þing til að mótmæla forræðishyggjunni og standa svo ekki upp til að verja málstaðinn. Það er helvíti hart að þurfa að skoða hverjum menn eru giftir áður en maður kýs þá. Þetta virðist allt vera ákveðið bara við eldhúsborðið heima.”

Og ég sem ætlaði ekki að fjalla meira um heimskuleg skrif.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 23rd, 2010| icon3No Comments »
Mar 2

Samkvæmt nýjustu könnuninni um fylgi flokka í Reykjavík kemst Jón Gnarr ekki inn í borgarstjórn.  Það kemur mér satt að segja á óvart en er satt að segja fegin. Þó að mér finnist djókið ágætt held ég að þau verkefni sem eru framundan í Reykjavík séu þess eðlis að við þurfum annað en bara góðan húmor  til að ná tökum á ástandinu og forgangsraða rétt. Þar kemur Sóley Tómasdóttir sterk inn. Hún er reyndar annálaður húmoristi líka, en jafnframt með reynslu, hugsjónir og rétta forgangsröðun.

Talandi um húmor og pólitík þá var Þráinn líka mjög fyndinn í morgun þegar hann upplýsti kjósendur um að 5% þjóðarinnar væru fábjánar. Ég er ekki viss um að Þráinn hafi haft erindi sem erfiði í því að sannfæra fólk um réttmæti listamannalauna.

Ég fór annars á setningu Búnaðarþings um daginn og hlustaði þar m.a. á ræðu Jóns Bjarnasonar, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Hann hafði ekki húmor fyrir auglýsingum Símans þar sem fimmmenningarnir í lopapeysunum fúlsa við þorramatnum, fannst þetta lítilsvirðing við þjóðlegar hefðir. Ég hafði aldrei litið svo á þessa auglýsingu,  enda finnst mér hún miklu frekar gera grín að þessum mönnum sem þykjast karlar í krapinu en þora svo ekki að smakka pínu þorramat.

Að lokum um húmorsleysi því ég hef nákvæmlega engann húmor fyrir þessari (kannski) fyrirhuguðu þjóðaratkvæðagreiðslu komandi helgi.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 2nd, 2010| icon3No Comments »