Það var ansi merkilegur leiðarinn í Fréttablaðinu í dag. Þar var agnúast út í Vinstrihreyfinguna - Grænt framboð fyrir að voga sér að láta hugmyndafræði sína stjórna ákvarðanatöku sinni. Nú veit ég ekki hvernig ritstjóri Fréttablaðsins tekur almennt ákvarðanir en ég get einhverra hluta vegna ekki talið það slæmt að fylgja hugmyndafræði sinni. Að vísu finnst mér hann eilítið tala í hringi því hann er raunar bæði að halda fram að VG fylgi hugmyndafræði sinni og að hugmyndafræði VG ætti í raun ekki að banna starfssemi ECA Programs því það sé ekki hernaðarstarfsemi.
Að reyna að rökstyðja að ECA Programs sé ekki hernaðarstarfssemi vegna þess að orustuþoturnar bera ekki vopn er eiginlega bara hlægilegt. Ég endurtek orustuþotur! Orustuþotur ætlaðar til heræfinga og þjálfunar hermanna.
Nóg af þessum leiðara. Dagurinn í dag er nefnilega merkilegur fyrir fleira en heimskuleg skrif, þó nóg hafi verið af þeim í dag. Í dag var nefnilega nektardans bannaður á Íslandi. Varðhundar þess sjálfsagða réttar karlmanna að kaupa sér konur hafa að sjálfsögðu risið upp og kvarta yfir að Alþingismenn verji ekki málstaðinn. Eða eins og Geiri á Goldfingar orðaði það:
“Mér finnst þetta bölvaðar kvígur sem láta kjósa sig á þing til að mótmæla forræðishyggjunni og standa svo ekki upp til að verja málstaðinn. Það er helvíti hart að þurfa að skoða hverjum menn eru giftir áður en maður kýs þá. Þetta virðist allt vera ákveðið bara við eldhúsborðið heima.”
Og ég sem ætlaði ekki að fjalla meira um heimskuleg skrif.