Feb 1

Steingrímur J. Sigfússon byrjaði erindi sitt á því að leggja út frá spurningunni  - Hvernig finnst okkur að myndin af okkur Íslendingum eigi að vera? Mig langar að nýta þetta sjónarhorn hans með því að spyrja ykku- Hvernig finnst ykkur að myndin af okkur, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði eigi að vera?

Eftir allt of langa setu nýfrjálshyggju og hægri manna. Eftir áratuga sóðaskap, græðgi og valdabaráttu þar sem hver maður (karlmaður) reyndi að skara eld að eigin köku tók ríkisstjórn okkar við. Ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og Samfylkingarinnar.

Í umboði kjósenda tóku þessir flokkar að sér að taka til. Ég verð að segja að mér finnst ansi vel að verki staðið á skömmum tíma. Fulltrúar okkar á þingi hafa unnið þrekvirki, lagt nótt við dag í að sópa saman brotin, heyja varnarbaráttu eða jafnvel stórbæta hag hópa í samfélaginu líkt og Katrín Jakobsdóttir gerði með hækkun grunnframfærslu námslána.

Því miður hafa öll þau góðu mál sem við höfum náð fram ekki fengið athygli sem skyldi. Okkar góðu mál hafa fallið í skuggann af eilífum innanflokkserjum sem helst virðast vera háðar í fjölmiðlum. Sú orka sem við eigum að vera að nýta til að koma til móts við þarfir Íslendinga á þessum tvísýnu tímum hefur farið í að slökkva elda sem við sjálf erum búin að kveikja.

Af hverju eyðum við ekki tíma okkar í að slökkva þá elda sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn kveiktu? Og að sjálfsögðu að bjarga heiminum í leiðinni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Greinasafn, VG | icon4 02 1st, 2010| icon3No Comments »
Apr 24

Nú eru örfáir dagar í kosningar. Það er frekar furðulegt að standa í kosningabaráttu á þessum erfiðu tímum. Kosningabaráttan er rétt nýhafin en samt eru flestir löngu komnir með upp í kok af stjórnmálum því umræða um þau, stöðu þjóðarbúsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,  stýrivexti, o.s.frv. hefur verið alls ráðandi síðan hrunið varð í október.

Frá byrjun október létu stjórnvöld óánægju þegna sinna sem vind um eyru þjóta. Stjórnvöld þóttust of upptekin við að bjarga málunum til að geta átt samráð við þjóðina, enda virtist mikil óvissa ríkja um það meðal sumra ráðamanna hver þjóðin væri eða hver gæti yfir höfuð talað í nafni hennar. Í huga almennings sem barði taktinn fyrir utan Alþingi var þó ljóst að stjórnvöld gátu ekki lengur talað í nafni þjóðarinnar.

Að endingu sprakk stjórnin. Vinstri græn, flokkurinn sem gjarnan var brigslað um að vera sífellt á móti öllu,  komst í minnihlutastjórn með Samfylkingunni og hefur eytt síðustu áttatíu dögum í að bjarga því sem bjargað verður fyrir kosningar.

Fólkið í flokknum sem ávallt var á móti - á móti ruglinu, ofþenslunni, stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórna, þessari brjáluðu neyslu og  öllu því sem á endanum kom samfélaginu í þrot hefði auðveldlega getað fallið í þá gryfju í þessari kosningabaráttu að eyða öllum sínum tíma í að rölta um bæinn að segja„I told you so“.  Hins vegar væri það ekkert sérlega uppbyggileg pólitík og sem betur fer snýst stjórnmálasýn Vinstri grænna ekki um að horfa sífellt í baksýnisspegilinn. Vinstri græn pólitík er nefnilega pólitík framtíðarinnar, sýn á það hvernig samfélag við viljum byggja upp og búa í.

Það eru erfiðir tímar framundan og því miður er engin galdralausn í boði. Það sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð getur hins vegar boðið upp á er heiðarleiki og ábyrgð. Við ætlum okkur hér eftir sem hingað til að koma hreint fram, fela ekkert og berjast fyrir félagslegu réttlæti, velferð, friði, umhverfisvernd og kvenfrelsi.

Spurningin er sú, hvaða flokk treystum við til að gæta hagsmuna okkar í gegn um þessar þrengingar?  Mitt svar er á hreinu. Mætum á kjörstað, kjósum Vinstri græn og gefum Sjálfstæðisflokknum og hans gildum langt frí frá valdasetu. 18 ár er svo miklu meira en nóg.

Greinin birtist 24. apríl 2009 á heimasíðu Ungra Vinstri Grænna

icon1 Auður Lilja | icon2 Greinasafn, Stjórnmál, VG | icon4 04 24th, 2009| icon3No Comments »
Apr 20

Þetta blogg mitt hefur verið í hálfgerðu lamasessi undanfarið.  Það þýðir þó ekki að ég hafi verið í afslöppun. Þvert á móti hefur verið nóg að gera.

Ég er komin í launalaust leyfi frá vinnu til að sinna kosningabaráttunni á lokasprettinum. Ég nýti tímann að sjálfsögðu mjög vel. Fór t.d. með nokkrum fulltrúum UVG í ferðalag í nokkra daga til að ræða við framhaldsskólanema víðs vegar um landið. Það var ótrúlega gaman en ferðasagan birtist á vinstri.is.

Næstu daga mun allur tími fara í að  svara spurningum, taka símtöl og sinna gestum og gangandi í kosningamiðstöðinni að Tryggvagötu 11 en við erum líka á fullu í að heimsækja vinnustaði og ræða um stjórnmálin. 

Það er líka ekki leiðinlegt að vera í kosningabaráttu þegar undirtektirnar eru svona!

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál, VG | icon4 04 20th, 2009| icon3No Comments »
Apr 2

Lánasjóður íslenskra námsmanna gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Sjóðurinn er tæki samfélagsins til að greiða götu fólks til menntunar og jafna aðstöðu til fjölbreytts náms. Tæki til að hvetja fólk til náms og styðja við bakið á því.

LÍN er þó ekki óháð tíma og rúmi heldur þarf sjóðurinn, ef hann á að geta sinnt hlutverki sínu sem skyldi - þ.e. því hlutverki að tryggja jafnrétti til náms að vera hluti af miklu stærri heild, hinu íslenska menntakerfi. Því ef grunnurinn er óstöðugur getur verið erfitt að byggja ofan á hann.

Strax í leik- og grunnskóla byrjar mismunun í íslensku menntakerfi. Það er  ólíðandi að öllum börnum standi ekki til boða ókeypis máltíðir yfir skóladaginn í grunnskólum landsins. Það er líka óréttlátt að tónlistarkennsla og íþróttaiðkun geti verið forréttindi þeirra barna sem eiga efnameiri foreldra í stað þess að vera á allra færi. Hvers konar fordæmi eru það sem skapast þegar foreldri sér sig knúið til að draga úr áhuga barn síns til að stunda íþróttir einfaldlega vegna þess að ekki eru til fjármunir á heimilinu? Tónlistarnám, íþróttaiðkun og heitur matur í hádeginu eiga ekki að vera forréttindi þeirra barna sem eiga efnaða foreldra, heldur sjálfsögð réttindi allra barna. Alveg eins og að háskólanám á ekki að forréttindi heldur sjálfsögð réttindi.

En er lánasjóður íslenskra námsmanna að ná að sinna hlutverki sínu sem skyldi? Er kerfið nægilega gott? Ég held því miður að flestir hér inni segi nei og geta nefnt ýmislegt sem mætti betur fara. Flest þau atriði tengjast því sennilega að sjóðurinn hefur ekki úr nægilegu fjármagni að spila. Það vantar nefnilega ekki viljann hjá stjórn LÍN eða starfsfólki sjóðsins að gera vel við námsmenn.

Þarna erum við komin að kjarna vandamálsins sem við stöndum frammi fyrir í dag. Því að þrátt fyrir allt, þrátt fyrir allar fagrar hugsjónir, mikinn metnað og velvilja, er hér kreppa. Og hvað gerum við þá?

Nú stendur stjórn LÍN til að mynda frammi fyrir því að eiga að endurskoða úthlutunarreglurnar sjóðsins en um leið spara miljarð.  Á sama tíma og sjóðurinn hefur minna fjármagn en áður til að spila úr er ástandið á atvinnumarkaðnum hræðilegt. Atvinnuleysi er mjög mikið og margir hafa bent á þá leið að atvinnulaust fólk ætti að geta nýtt tækifærið og stundað nám, - byggt sig upp.

Það er hins vegar ekki mjög auðvelt fyrir fólk að velja það að hefja nám þegar námslán eru um 50.000 krónum lægri en atvinnuleysisbætur. Fólk þarf jú að lifa af, sjá fyrir sjálfum sér og heilu fjölskyldunum.

Þarna held ég að okkar stærstu sóknarfæri séu. Eins og námslán eru hugsuð í dag er gert ráð fyrir að hægt sé að stunda vinnu með námi, að minnsta kosti yfir sumarið helst allan veturinn með námi. Nú er staðan hins vegar allt önnur. Ástandið á vinnumarkaðinum gerir það að verkum að þessi forsenda er brotin. Auðvelt er að áætla það að erfiðara verði fyrir námsmenn að fá vinnu í sumar, hvað þá með skóla næsta vetur. Þetta gerir það að verkum að stúdentar koma til með að þurfa að treysta nær eingöngu á námslán sér til framfærslu. Því þarf að mínu mati að hækka grunnframfærslu námsmanna eins og mögulegt er. Það er hins vegar því miður ekki hægt vegna stöðu LÍN nema að á móti komi sparnaður hvað annað varðar t.d. hækkun á tekjuskerðingarhlutfallinu.

Ég kýs þó að kalla áherslu á hækkun grunnframfærslu þó að til komi hærra skerðingarhlutfall ákveðið sóknarfæri því að með slíkri breytingu á nálgun námslána, þ.e. að þau séu ekki hugsuð sem hluti af mánaðarframfærslu á móti  launum gætum við líka LOKSINS náð að koma í gegn hugarfarsbreytingu sem mér hefur þótt vanta á hér á landi hingað til, þ.e. sú staðreynd að NÁM ER FULL VINNA. 

Þó að Vinstri Græn, sem ég tala fyrir hér í dag, gangi til kosninga í kreppu jafnt og allir aðrir flokkar er forgangsröðun okkar skýr. Við viljum standa vörð um menntakerfið, heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið. Þegar þrengir að er þörf á því sem aldrei fyrr. Auðvitað þarf að spara á öllum stöðum, það hlýtur að vera svo þegar um er að ræða 150 miljarða halla á ríkissjóð. Spyrjið ykkur bara að því í kjörklefanum, hverjum þið treystið best til að spara en hlúa um leið að grunnstoðum samfélagsins. Ég veit hverjum ég treysti best.

icon1 Auður Lilja | icon2 LÍN, Stjórnmál, VG | icon4 04 2nd, 2009| icon31 Comment »
Mar 4

Í gær var kynningarfundur UVG-H á ungum frambjóðendum í forvali Reykjavíkurkjördæmana. Fundurinn var mjög fínn, fimm frambjóðendur kynntu sig og að því loknu tóku við miklar umræður.

Nokkrar umræður voru á fundinum hvort að ástæða væri til að kynna ungliða sérstaklega og hverjir væru þá ungliðar (við hvaða aldur ætti að miða).  Það er allavega klárt að það mætti lækka meðalaldur þingflokks VG þó nokkuð og veit enga betri leið til þess en að kynna ungt fólk í framboði sérstaklega. Við hvaða aldur eigi að miða er hins vegar allt annað mál. Ung vinstri græn miða við 30 ára og yngri, hinir flokkarnir 35 ára og yngri. Ég held að það verði alltaf erfitt að setja línur í svona löguðu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál, VG, forval VG 2009 | icon4 03 4th, 2009| icon3No Comments »
Feb 4

Katrín Jakobsdóttir ætlar greinilega að taka til í Lánasjóð íslenskra námsmanna. Húrra fyrir því. Ég er samt ekki frá því að ég eigi eftir að sakna Gunnars enda hefur hann verið einstaklega duglegur við að svara greinum frá mér í gegnum tíðina.

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál, Uncategorized, VG | icon4 02 4th, 2009| icon3No Comments »
Feb 2

Ef ég þarf að hlusta á mikið fleiri fréttatíma þar sem fjölmiðlafólk tönglast á því að Vinstri Grænir séu komnir í ríkisstjórn o.s.frv. fer ég yfir um.

Hversu erfitt getur verið að muna að þessi tiltekni flokkur samanstendur af bæði karlmönnum og kvenmönnum sem kjósa að kalla sig VINSTRI GRÆN. 

Ég meina flokkurinn hefur verið til í 10 ár!

icon1 Auður Lilja | icon2 VG | icon4 02 2nd, 2009| icon31 Comment »
Feb 1

Nú skiptist fólk á að bölva eða blessa nýju ríkisstjórnina. Ég veit ekki hvað skal segja nema að það hefði engu máli skipt hvort VG hefði verið með eða ekki það hefði aldrei verið rétt að mati sumra.

Damned if you do, damned if you don’t.

Af þeim kostum sem voru í boði þá hefði ég  persónulega aldrei getað verið sátt við VG ef hlaupist hefði verið undan ábyrgð, setið hjá og vonast eftir stórsigri í næstu kosningum. Ég er því ekki beint himinlifandi yfir þessari stöðu en trúi því og treysti að þessi nýja ríkisstjórn reyni eftir fremsta megni að skapa traust í samfélaginu á ný, taka til og sýna fram á að hagkvæmni/óhagkvæmni eru ekki einu mælikvarðarnir í boði heldur rétt/rangt, sanngirni, réttlæti o.s.frv.

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál, VG | icon4 02 1st, 2009| icon3No Comments »