2 ára afmælisstelpan mín

February 12th, 2009
Jóhanna Karen 2 ára

Jóhanna Karen 2 ára

Jóhanna Karen dóttir mín átti afmæli í gær og er orðin 2 ára. Að því tilefni var vefdagbókin á heimasíðu systkinanna fyllt af myndum og lofsöngvum um Jójó litlu :)

Undarlegt að eiga bara svona “stór” börn. En ég lít enn á mig sem svo mikla ungamömmu. Við höfum líka verið með lítil börn svo lengi.. áður en Hildur Arney varð 2 ára þá var Jóhanna fædd.. Það verður skrítið að vera ekki með neitt bleyjubarn á heimilinu þegar litla hættir alfarið á bleyjunni.  Hún er nú á svo skemmtilegu skeiði, að læra að tala svo mikið og tjá sig, gaman að fylgjast með henni á hverjum einasta degi :)

Dæturnar

February 5th, 2009
Hildur Arney og Jóhanna Karen að skoða bækur

Hildur Arney og Jóhanna Karen að skoða bækur

Í næstu viku eiga þessar flottu dætur mína afmæli. Þann 11. verður Jóhanna Karen 2 ára og þann 14. verður Hildur Arney 4 ára.

Einar magni sonur hennar Brynju systur verður einnig 4 þann 14. enda fæddur á sama tíma og Hildur og stefnir allt í stærðar afmælispartý með þremur afmælisbörnum.

Ég þarf að fara að dusta rykið af uppskriftarbókum og töfra fram eitthvað flott fyrir krakkana :) Ætla ekki að leyfa Svenna að sjá um það einn í ár.  En hann er svo ofurduglegur í eldhúsinu alltaf hreint að ég er nánast hætt að gera nokkurn skapaðan hlut þar. Er best í að gera Rice crispies kökur og kann að poppa fullkomið skjannahvítt popp meðan Svenni poppar gulu og svörtu poppi. En það er hér um bil það eina sem ég er betri en hann í ;) Þegar kemur að bakstri á hann yfirleitt flotta köku en ég eitthvað misheppnað sem annaðhvort lyfti sér ekki eða brann, enda virðist mér það lífsins ómögulegt að fylgja uppskrift nákvæmlega.  En það er spurning hvort ég nái að breyta ýmind minni í ár.. ef ekki get ég allavega mallað smá Rice crispies og poppað ;)

Blogg

February 4th, 2009

Nýlega gerðum við verkefni í skólanum þar sem við rýndum í málfar fólks í sjónvarpi og í opinberum skrifum. Minn hópur fékk það hlutverk að skoða bloggsíðurnar og lá ég yfir fjölda síðna og gagnrýndi hvern einasta staf sem skrifaður var. Við áttum að skoða hvort aldur, kyn, menntun og staða hefðu áhrif á hvernig fólk talar og skrifar, hvort fólk noti málhækjur og veikt mál. Fyrir þetta verkefni hafði ég lítið spáð í skrif mín hér á síðunni út frá þessu. Eins og sést á síðunni hef ég reyndar lítið spáð í skrif hér yfirhöfuð :) Spurning hvort verkefnið fá mig til að vanda skrif mín og málfar betur hér á síðunni? Ég er nú ekki viss um það, en það fékk mig allavega til að blogga aftur. Það og yfirfærsla kommúnunnar yfir á Worldpress. Legg til að það verði kommúnupartý fljótlega og þá get ég borgað Óla uppsafnaðar bjórskuldir fyrir bloggsíðuna :)

Flutningur

August 20th, 2008

Við erum að flytja. Verður mikill söknuður og sorg að fara af Brávallagötunni. Æðisleg íbúð í frábæru hverfi með frábæra nágranna. Við erum búin að búa hér í 3 ár og orðin ansi heimavön. En svona eru hlutirnir bara og við verðum bara að líta á þetta sem tækifæri. Gæti verið upphafið á einhverju enn betra.

Við förum þó ekki langt, það kom ekki til greina að fara úr elsku Vesturbænum okkar - förum út á Granda og verðum þar í kósí og flottri íbúð á mjög góðum stað. Erum um 300-600 metra frá leik og grunnskólunum og rétt hjá KR vellinum og stutt fyrir guttann að fara á æfingarnar. Ég fæ draum minn um fataherbergi loksins uppfyllt - þó það sé ekki jafn stórt og í sex and the city þá er það allavega fataherbergi ;)
En hér með óska ég eftir tómum pappakössum í tonnatali til að koma þessari búslóð fyrir og eftir aðstoð frá góðum vinum við að flytja og að passa börnin meðan við erum að flytja og þrífa íbúðina :)

Lagið um Drífu

July 29th, 2008

Hljómsveitin Veðurguðirnir hefur samið lag um “mig” og lít ég á gjörninginn sem persónulega árás á mig.


“Lagið og textinn við Drífu, er eftir Ingó sjálfan rétt eins og Bahama. Hann segir textann segja ákveðna sögu. „Ekki beint ástarsaga. Jú, kannski ástarsaga en í senn ádeila á einhverja Drífu sem er snarvitlaus.” Hann segir þó ekki um neina ákveðna Drífu að ræða en: „Menn geta getið í eyðurnar ef þeir þekkja einhverjar klikkaðar Drífur.”

Lagið er ekki bara með lélegum texta, heldur einnig mjög lélegri laglínu og hlakka ég mikið til að hlusta á alla syngja þetta lag fyrir mig við öll tækifæri næstu vikur og mánuði.

Hægt er að hlusta á níðvísuna á myspace síðu hljómsveitarinnar og þætti mér vænt um ef sem flestir gætu bara get it over with, hlustað á lagið og hlegið að mér svo brandarinn klárist aðeins fyrr en Drífasig djókið sem enn þykir fyndið eftir 27 ár.

Ég er viss um að þetta er hefnd mín fyrir að láta mág minn alltaf fá á heilann hræðileg lög á borð við Bahama og Þetta er lífið með Geir Ólafs.

Míní mí

July 27th, 2008

Ef það væri til mynd af Jóhönnu dóttur minni með gifs á báðum fótum, sitjandi í gömlum kóflóttum sófa - þá liti myndin nákvæmlega svona út.

Finnst ykkur við ekki líkar?

Dásamlegir hjólavagnar og enn dásamlegri börn

July 18th, 2008

Það er alveg fátt dásamlegra og skemmtilegra en að hjóla um með krílin í hjólavagni aftan í.

”turtle”<br Hildur Arney og Matthías Hjörtur (Mörtusonur) í stuði

”turtle”<br Systurnar Hildur og Jóhanna krúttlegar og smá feimnar við myndavélina

”turtle”<br Jóhanna Karen og Matthías Hjörtur sæt saman (Jóhanna eitthvað ósátt við nýja fína hjálminn sinn)

Sumar og sól

July 15th, 2008

turtle Benedikt og Jóhanna Karen í Nauthólsvíkinni :) Svo góð systkinin saman.

turtle Hildur Arney og Benedikt - Krúttleg á ströndinni í baðsloppunum sínum

turtle Benedikt stóri gaurinn minn, orðinn 7 ára og búinn að missa fullt af tönnum og er alger fótboltasnillingur:)

turtle Hildur Arney miðjustelpan mín, fyriburastelpan mín. Var svo lítil og orðin svo stór og algjört bjútí eins og þið sjáið. Er líka alger gaur.

turtle Jóhanna Karen litlan mín, litla krullumús. Hún er nýfarin að labba og er algert kúrudýr og eins og þið sjáið algert mega krútt.

turtle Systurnar þreyttar á leiðinni heim :) Eftir æðislegan dag á stöndinni.

Ég stend með ljósmæðrum

July 9th, 2008


„Ljósmæðrafélag Íslands hefur farið fram á það við ríkisstjórnina að laun þeirra verði leiðrétt til samræmis við laun annarra háskólastétta með sambærilega menntun. Flótti hefur verið úr stéttinni að undanförnu og nýliðun ekki nægileg. Fjöldauppsagnir eru í farvatninu og líðan og öryggi fæðandi kvenna í uppnámi.

Ljósmæður þjónusta konur og börn á mikilvægustu augnablikum lífsins. Launakjör þeirra eru til marks um að hvorki þarfir né störf kvenna séu metin að verðleikum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er því lofað að kjör kvenna hjá hinu opinbera verði endurmetin, einkum hjá þeim stéttum þar sem konur eru í miklum meirihluta. Ljósmæður eru eingöngu konur.”

Ég hef mikla reynslu af þjónustu ljósmæðra, enda hef ég gengið með og fætt þrjú börn og verið í áhættumeðgöngu og lá lengi inni á meðgöngudeild. Ég hef kynnst alveg ótrúlega mörgum frábærum ljósmæðrum á þessum tíma. Ljósmæðurnar (og ljósuneminn) sem tóku á móti börnunum mínum voru allar frábærar og hjálpuðu mér mikið í fæðingunum. Ljósmæðurnar (og nemarnir) á meðgöngudeildinni voru líka algert gull og hugsuðu mjög vel um mig, studdu mig og dekruðu við mig meðan ég lá þarna vikum saman í rúmlegu. Störf þeirra og annarra inn á sjúkrahúsunum eru með mikilvægustu störfum samfélagsins og það er eiginlega bara skammarlegt að þetta fólk skuli ekki fá greitt laun í samræmi við ábyrgð og menntun.

Blikkandi ljós

July 6th, 2008

Á Vesturlandsvegi á leið okkar inn í bæinn í gær mættum ég og fjölskyldan einhverjum brjálæðingi á ofsahraða með fjölda lögreglubíla í eftirdragi. Fréttin á mbl.is segir að þetta hafi verið einhver ölvaður maður á stolnum bíl. Hér kemur svo smá tilvitnanir úr fréttinni:

,,Er lögreglan gaf bifreiðinni stöðvunarmerki [...] sinnti ökumaður því engu og jók hraðan, ók [...] fram úr bílum öfugu megin og inn í Árbæinn. Þar var ekið á ofsahraða eða allt að 100 km / klst þar sem hámarkshraði er 30km klst ökumenn og gangandi vegfarendur áttu fótum sínum fjör að launa að forða sér frá [...] engu skipti þótt lögreglumenn settu upp lokanir og þrengingar, bifreiðinni var miskunnarlaust ekið yfir kanta, yfir hringtorg, móti rauðu ljósi, upp á gangstéttir og öfugt á móti akstursstefnu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.”

Hvernig kæru og dóm ætli hann fái? Á svona fólk ekki að vera kært fyrir tilraun til manndráps?

Viðbót: og þessi!