Nú er komið nýtt útlit á síðuna mína. Orðin bara nokkuð flott
Ég er samt ekki svona klár að hafa getað þetta sjálf.
Það er snillingurinn hún Guðrún Björk sem á heiðurinn að nýja lúkkinu
Takk elskan!
Archive for September, 2005
Nýtt útlit
Thursday, September 29th, 2005En frábær tímasetning!
Wednesday, September 28th, 2005Ætli það séu til einhverjar óskráðar reglur, einhver dulin formúla. Ætli einhver æðri vera sitji fyrir ofan okkur og leiki sér að því að fokka upp örlögum okkar og tímaröð..
Ef ekki, hvers vegna eru þá sumir hlutir eins og þeir eru??
Óður til Auðar
Tuesday, September 27th, 2005Jæja það kom þá loksins að því að ég var klukkuð. Allra manna síðust. Frekar blendnar tilfinningar sem fara um mann. Ætli þeim hafi liðið svona í gamla daga, krökkunum sem voru alltaf kosin síðust í leikfimi?
En það var hún Auður sem klukkaði mig og hún bætti svo við “til þess að gera viðfangsefnið örlítið skemmtilegra geri ég samt þá kröfu að allir fimm punktarnir innihaldi nafnið mitt….”
Hér koma þá þessir fimm punktar sem innihalda allir nafnið hennar Auðar.
Gulir og rauðir
Monday, September 26th, 2005Það er slæmt fyrir sálina að fara upp í skóla.
Það bregst ekki að í hvert sinn sem ég kem þangað þá sé ég rauð og gul blöð og bæklinga á víð og dreif um allt húsið. Ég reyni yfirleitt að stoppa mig í því að lesa þá, en það er eins með þetta og margan annan slæman ávana, það er fjári erfitt að hemja sig.
Ég enda því alltaf á því að taka mér blaðið í hönd og lesa það.
Newlyweds
Monday, September 26th, 2005
Á sunnudagskvöldum er raunveruleikaþátturinn Newlyweds á dagskrá á sirkus. Hann fjallar um hina bráðgáfuðu Jessicu Simpson og mann hennar Nick nokkurn Lachey. Nick þessi er víst frægur einhverstaðar í útlandinu en flestir þekkja hann ekki fyrir neitt annað en að vera maður konunnar sinnar. (Svona nokkuð svipað og Freyr)
Er að koma mér fyrir
Sunday, September 25th, 2005Er að koma mér fyrir hér og reyna að gera mig heimakæra á þessu nýja svæði. Gengur ekkert rosalega vel eins og glöggir geta eflaust séð. Ég kann ekki neitt á þetta.
Hvernig í ósköpunum get ég fundið mér nýtt útlit á þessa síðu. Er búin að reyna að leita að þessu en gengur ekki betur en það að síðan mín er enn copy af Auðar síðu. Held hún sé hrædd við mig út af því, er of keimlíkt þema myndarinnar “single white female”.
Vill ekki einhver snillingurinn hjálpa mér að setja eitthvað lúkk á þessa síðu ![]()
Ef ég kem í gang hérna flottri síðu, þá skal ég lofa að vera soldið dugleg að blogga.. svo það er til mikils að vinna fyrir aðdáendur mína að hjálpa mér við þetta.
Fyrsta færslan
Wednesday, September 21st, 2005Fyrsta færslan á nýju bloggsvæði. Góð tilfinning að yfirgefa eldra og verra svæði fyrir langþráðan nýjan og betri stað.
Í augnablikinu er útlitið á síðunni nákvæm eftirmynd af blogginu hennar Auðar. Er að vinna í því að finna mér nýtt lúkk. Þó það sé ekki leiðum að líkjast, þá ætla ég þó að reyna að hafa eitthvað annað en hennar ![]()
Ég finn fyrir mikilli pressu að fara að standa mig betur í bloggskrifum mínum og ætla að reyna að standa undir væntingum á þessum nýja stað og blogga allavega örlítið oftar en áður.