Archive for November, 2005

Stjórnmálaþurs

Friday, November 25th, 2005


Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.

Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.



Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu… sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.


Hvaða tröll ert þú?

Sumt þarna (margt) á skuggalega vel við mig ;)

Mér kítlar

Tuesday, November 15th, 2005

Auður kítlaði mig, ætli ég neyðist ekki til að sýna smá lit og svara þessu.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Komast betur að því hvað ég vil gera í lífinu og mennta mig enn frekar í þá áttina.
- Finna mér gott starf þar sem ég er ánægð.
- Giftast sambýlismanni mínum.
- Eignast mitt eigið hús fyrir fjölskylduna.
- Búa í útlöndum og/eða ferðast reglulega til útlanda með fjölskyldunn.
- Ala börnin mín sómasamlega upp, fylgjast með þeim fullorðnast og koma sér fyrir í lífinu:)
- Eignast fullt af barnabörnum.


Sjö hlutir sem ég get gert:

- Legið í rúmi allan sólahringinn í samfellt 5 vikur.
- Látið meiddi lagast með því að kyssa það.
- Talað endalaust mikið um það sem mér býr í hjarta.
- Spilað Risk og verið tapsár.
- Vakað endalaust lengi á nóttunni.
- Hlustað á sama lagið á repeat í bílnum í margar vikur.. í hvert einasta skipti sem ég keyri 10 mínútna rúnta.
- Hangið á netinu endalaust mikið.

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:
- Sparað peninga (Eins og Auður).
- Hætt að drekka kók (Eins og Auður).
- Verið stundvís.
- Fundið fyrir tilfinningu hægra megin í munninum.
- Borðað hollan mat og lifað heilbrigðu líferni.
- Lært jafnt og þétt yfir skólaönnina svo ég lendi ekki í stressi í prófavikunni.
- Sleppt tækifæri til að koma með kaldhæðin tilsvör (Sérstaklega við Auði og Erlu).

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

- Sjarmi..
- Sjálfstraust
- Augun
- Röddin
- Gáfur
- Húmor
- Framkoma

Sjö frægir menn sem heilla:

- Colin Farrell
- Josh Holloway (Sawyer í LOST)
- Jesse Metcalfe (John gardener í Desperate housewifes)
- Brad Pitt
- George Clooney
- Johnny Depp
- Taye Diggs

Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið:

- Nenniru að fara í þvottahúsið?
- Viltu kaupa Ópal?
- Hvað gerðir þú í leikskólanum í dag?
- Klukkan er 5, barnaefnið byrjar eftir klukkutíma.
- Hún er enn 5
- Já hún er enn bara 5
- Eddu sona dulleg að klappa!!!

Sjö hlutir sem ég sé akkúrat núna:
- Handáburður.
- Tómt (vatns) glas.
- Hnakkann á Svenna í hinni tölvunni.
- Hvað hendurnar á mér eru ógeðslegar.
- Bókahillu sem þarfnast nauðsynlega skipurlags.
- Að sex and the city er að fara að byrja í sjónvarpinu
- Að þetta er síðasta línan.

Að lokum kítla ég Erlu og smita hana í leiðinni af mínum tilfinngalega smitsjúkdóm.

Hollráð dagsins

Tuesday, November 15th, 2005

Notum tannþráð!