Mikið er ég orðin löt við að blogga. Ætti að skammast mín fyrir þetta.
Það var frábært í Kaupmannahöfn, gerðum flest sem við ætluðum að gera. En héngum reyndar aðallega á strikinu og versluðum, fórum út að borða, hengum á kaffihúsum og börum. Karókí barirnir voru vinsælir.
Nú er allt brjálað að gera hjá mér á öllum sviðum. Er að taka við formannsembættinu hjá fjölskyldunefnd þessa dagana. Verið að undirbúa kostningabaráttu Háskólalistans með tilheyrandi fundastússi. Er svo með stelpuna í aðlögun hjá dagmömmu og líklegast að byrja að vinna um mánaðarmótin.
Nóg að gera, er skelfilega þreytt eitthvað. Væri svosem ekkert tiltökumál ef ég væri ekki alltaf svona þunn.