Archive for February, 2006

B3Banani

Tuesday, February 28th, 2006

Sonur minn tilkynnti mér áðan að hann héti nú B3Banani. Þetta nýja heiti hans má að einhverju leyti rekja til þess að hann er mikið að spá í stöfum þessa dagana og hann á stafinn B, B eins og í Benedikt, B eins og í Banani. Hvaðan þessi 3 kemur veit ég þó ekki. En í allan dag og kvöld hefur hann viljað gangast undir þessu nafni og bað mig um að tilkynna ömmu sinni og frænku það áðan.

Ég er að drepast í bakinu og hálsinum. Byrjaði í gær og er búin að vera að farast í allan dag og kvöld. Er varla að ég geti gengið, en ætla að reyna að þrauka þetta og mæta í vinnuna á morgun. Geri nú samt ekki mikið gagn þar ef ég lagast ekki eitthvað. Er á leiðinni í sjóðandi heitt bað + verkjatöflu og ætla svo beint að sofa. Bú fokking hú, aumingja ég. Vorkennið mér takk.

Get þó þakkað fyrir að vera ekki jafn illa stödd og Heizi greyið sem nældi sér í fuglaflensuna.

Bolludagurinn

Monday, February 27th, 2006

Í dag er bolludagurinn, maðurinn minn húmoristinn óskaði mér til hamingju með daginn. Tók mig töluverðan tíma að fatta hvað hann var að meina. Í leikskólanum var dagurinn haldinn hátíðlegur og borðað fullt af bollum. Var óvenjuleg gott veður í dag, sól og blíða og gott að geta verið úti í vinnunni. Á miðvikudaginn er svo sjálfur öskudagurinn. Við í vinnunni ætlum að sjálfsögðu að vera í búningum eins og börnin. Benedikt sonur minn ætlar klæddur sem íþróttaálfurinn, sem er eflaust vinsælasti búningurinn í ár.

Í gærkvöldi fór ég og heimsótti hana Svölu óléttu vinkonu mína. Ég er ekki nógu dugleg að heimsækja hana og er helsta ástæðan sú að hún býr upp í Breiðholti og þegar maður er svona fastur í 101 þá er erfitt að hafa sig í ferð alla leið þangað. Hún er alveg að verða komin á tíma og gat ég varla beðið með það lengur að heimsækja hana til að sjá bumbuna áður en marsbúinn myndi stinga af úr henni. Kvöldið fór að mestu í það að tala um meðgöngu, fæðingar og allt sem því fylgir.

Um helgina ákváðum við Svenni að prófa nýja tækni. Við tókum gylliboði einhverra kvennsu sem hringdi i okkur og bauð okkur að fá myndlykil og skjáinn.is frítt í mánuð. Við pöntuðum mynd og fyrir valinu var myndin Heimkynni á hjara veraldar með hinum kynþokkafulla Colin Farrell. Myndin var fín, var svarthvít í gegnum þessa tækni og fengum við hana því fría. Mr. Farrell var sexy as usual en var aðeins of mikið að sveigjast að vitlausu kyni fyrir minn smekk. Svenni leit undan í sumum ástarsenunum.

Í kvöld er ég svo búin að sitja sveitt yfir verkefnum fjölskyldunefndar. Ég mun nefnilega fljótlega hætta sem formaður þegar ný nefnd tekur við og ég á svo erfitt með að láta frá mér eitthvað án þess að vera fullkomnlega ánægð með það. Alltof mikið sem ég vil klára áður en það gerist. Á síðustu vikum sendi ég 40 manns bréf þess efnis að þau kæmust ekki að á uppeldisnámskeið sem við erum að bjóða upp á núna. Mér hefur sjaldan fundist ég jafn vond manneskja, ferlega leiðinlegt hvað margir voru svekktir og sumir höfðu heldur ekki komist að síðast.

Skóblogg

Sagan af Rökkva og Valla

Sunday, February 26th, 2006

Þegar maður starfar á leikskóla verður maður oft vitni af ótrúlegustu hlutum. Ég ætla að segja ykkur litla sögu úr leikskólanum mínum. Þetta er smásaga í lengri kanntinum, byggð á raunverulegum atburðum.

Sagan fjallar um tvíbura á leikskólanum, þá Rökkva og Valla. Foreldrar þeirra voru víst aldrei í sambúð en eftir fæðingu þeirra ákváðu þau að skipta með sér uppeldi sonanna og ólust þeir upp í sitthvoru lagi, annar hjá móður þeirra og hinn hjá föður þeirra. Þrátt fyrir það voru þeir ótrúlega líkir, ekki bara í útliti, heldur einnig framkomu. Foreldrar þeirra vildu ekki hafa þá saman á deild og því var ákveðið að setja þá á sitthvora deildina. Rökkvi var settur á Rauðagarð og Valli á Gulagarð.

(more…)

Fjölhæf fyrirsæta

Friday, February 24th, 2006

Ég er að spá í að kaupa mér eina svona peysu, í stíl við gullbuxurnar mínar. Fyrirsætan gerir þær allar mjög flottar og skemmtilegt að sjá hvernig hún pósar á myndunum. Fjölhæf og falleg fyrirsæta. Kíkið á úrvalið og athugið að þetta er ekki bara ein blaðsíða heldur er hægt að skoða nokkrar síður áfram og sjá dýrðina.

Sjálfmiðuð

Friday, February 24th, 2006

Auður henti þeirri blautu tusku framan í mig í samnefndu bloggi sínu, að ég gæti verið of sjálfmiðuð. Ég er hvorki sjálfselsk né of sjálfmiðuð.

Ég er hinsvegar mikill listamaður í mér og nú er ég að byrja á nýju þemaverkefni sem felst í því að ég ætla að sitja sjálf fyrir á eigin ljósmyndum og mála svo myndir eftir þeim fyrirmyndum. Vera mitt eigið módel. Verkefnið mun fá heitið “Sjálfmiðuð”.

Skywalker

Wednesday, February 22nd, 2006

Gunni Skywalker, “bróðir” minn og liðsfélagi er tvítugur í dag. Ég vil fyrir hönd alls liðsins óska honum innilega til hamingju með afmælið og einnig með frábæran árángur á leikunum.

Nafli er lok..

Tuesday, February 21st, 2006

Í gær hitti ég naflalausa manneskju. Já manneskju með engan nafla!!. Fékk að sjá svæðið sem eðlilega hefði átt að geyma naflann með eigin augum!

Ég vissi ekki að til væri naflalaust fólk og fannst þetta mjög merkileg upplifun.

Í tilefni þess er ég með smá myndagetraun. Leiðbeiningarnar eru einfaldar finnið naflann á myndinni

“Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda úti sem og gabríel!”

Takið ykkur stöðu..

Sunday, February 19th, 2006

Keppendur í úrslitum í skriðkeppni ungbarna gera sig tilbúna að þjóta af stað. Þarna eru hinn tæplega 6 mánaða gamli keppandi Hjörtur Stapi sem keppir fyrir hönd Eggertsgötunnar og hin eins árs gamla Hildur Arney a.k.a “Libba” representing Brávallagötunna. Liðsmaður Guðrúnargötunnar, hin 11 mánaða Freyja Sigrún (Freysa) þjófstartaði og var dæmd úr leik. .

Myndarleg afkvæmi

Sunday, February 19th, 2006

Freyja Sigrún, Hildur Arney, Matthías Hjörtur og Benedikt

Í gær héldum við smá afmælisveislu fyrir hana Hildi Arneyju og buðum vinum hennar þeim Freyju Sigrúnu (Auðar og Freysdóttur) og Matthíasi Hirti (Mörtusyni). Boðið var upp á pönnsur og skemmtu allir sér vel. Litla skvísan var ansi sátt við partýið.

Erla komin

Friday, February 17th, 2006

Jeij Erla er komin heim. Við Auður ætlum að taka á móti henni með “Velkomin heim” partýi heima hjá Auði í kvöld!

Velkomin heim Erla mín!! :)