Archive for February, 2006

Bachelorinn

Thursday, February 16th, 2006

Ég sit hér ein heima að horfa á Bachelorinn. Það gerist ekki mikið daprara.

Hvernig líður þér í dag?

Wednesday, February 15th, 2006

Við sendum hristuna til Drífu
og hún spilar undir og við syngjum öll með
Góðan dag, góðan dag
Hvernig líður þér í dag?
Vonandi líður þér vel

Ég er núna búin að vera að vinna á leikskóla í rúmlega viku. Eftir að ég kem heim hringsnúast á repeat í höfðinu á mér lög á borð við þetta hér fyrir ofan.

(more…)

Afmælisbörn dagsins

Tuesday, February 14th, 2006

Í dag er stórmerkilegur dagur. Það er Valentínusardagurinn 14. febrúar. Þennan dag fyrir ári síðan gerðist sá merkilegi atburður að ég og Brynja systir eignuðumst báðar börnin okkar, með tæplega 5 klst millibili. Þeim lá mikið á að koma í heiminn og fæddist dóttir mín 11 vikum of snemma og sonur systur minnar 6 vikum of snemma. Á sama tíma fyrir ári, láu þessi litlu kríli saman á vökudeildinni og við mömmurnar saman á systrasvítunni, herberginu okkar á sjúkrahúsinu.

Litlu valentínusartvíburarnir heita Hildur Arney og Einar Magni og ég óska þeim báðum innilega til hamingju með afmælið :)

Svitalyktaeyðir ha hvar?

Monday, February 13th, 2006

Hvað myndi unga fólkið í dag gera ef það gæti ekki leitað ráða á internetinu varðandi öll sín vandamál.

Þessi “vinkona” stakk einhverju eitthvert upp þangað sem það átti ekki að fara!

Séð og Heyrt

Monday, February 13th, 2006

Ég var stödd á sólbaðsstofu í verri enda borgarinnar í kvöld. Einhver seinkun var í gangi og meðan ég beið náði ég að lesa öll helstu tímarit landsins, þar á meðal Séð og Heyrt. Ég er einmitt ein af þeim sem kaupi aldrei blaðið, en skoða það alltaf ef ég sé það liggja einhverstaðar.

Það var margt mis spennandi og skemmtilegt í þessu blaði eins og ávalt. Ómerkilegt slúður um íslensk celeb. En uppáhaldsmyndin mín var undir umfjöllun um Fjölni og Mailinn unnustu hans. Þau eignuðust nýlega son og voru nokkrar blaðsíður þarna uppfullar af myndum af þeim, barninu og tengdapabba Fjölnis. Á einni myndinni sitja þau öll saman í mjóum sófa. Tengdapabbinn, unnustan með barnið í fagninu og svo Fjölnir með dökkhærða skutlu í fanginu og með höndina á rassinum á henni. Ég pírði augun og las undir til að sjá hvaða stúlka þetta væri, og bjóst við að sjá annaðhvort “Birgit sænska aupairin þeirra” eða jafnvel bara að þetta væri viðhaldið eða nýja konan. En nei þetta var bara mágkona Fjölnis. Undir myndinni stóð einmitt “fór vel á með þeim” eða eitthvað álíka.

Skemmtilegt, skemmtilegt.

Ónefndur maður

Monday, February 13th, 2006

Sagði nokkur orð um mig um þar síðustu helgi. Veit ekki hvort hann meinti það vel eða illa. Ég tek þeim allavega ekki sem miklu hrósi. Síðan þá hef ég ekki lifað heilan klukkutíma án þess að nærstaddir vitni í þennan mann.

Meira að segja mínum eigin manni þykir þetta fyndið og mikið til í þessu. Ég er sármóðguð!

Frábært tónlistarmyndband

Saturday, February 11th, 2006

Það er ekki að ástæðulausu sem David Hasselhoff hefur verið nefndur einn kynþokkafyllsti karlmaður heimsins! Ég fann frábært video á netinu með honum, sem sannar í eitt skipti fyrir öll hvers vegna svo er!

Myndbandið gæti tekið smá stund að hlaðast inn, en bíðið eftir því, það er vel þess virði. Þetta myndband hefur það allt. Myndarlegur flytjandi, falleg söngrödd, frábær leikstjórn og tæknibrellur og er bara hreint út sagt æðislegt.

Klikkið hér og njótið vel. OOGA CHAKKA!!!!

Næld

Saturday, February 11th, 2006

Jæja ég var víst “næld” á allavega tveimur stöðum, Brynja systir og Svenni gerðu mér þann óleik og neyðist ég því til að svara nokkrum spurningum.

(more…)

Úrslitin

Friday, February 10th, 2006

4-4-1

Við héldum okkar manni og ég er bara nokkuð sátt. Sama staða og var síðasta starfsár. Vona að samstarfið í stúdentaráði í ár eigi eftir að vera gott og óska Arndísi og Fjölni velferðar í starfi :)

Munið að kjósa!

Thursday, February 9th, 2006

Ef þú ert ekki enn búin/n að kjósa, þá hefur þú klukkutíma til stefnu.

Og munið að kjósa rétt :)

Háskólalistinn