H-vaði stóð svo sannarlega undir nafni í gær. Hljómsveitirnar voru klikkaðar og stemmingin alveg gríðarleg.
Einhverjar myndavélar voru á lofti og skora ég á eigendur þeirra að pósta myndum á netið við fyrsta tækifæri.
Við skötuhjú stungum af í fyrra lagi, fengum okkur Hlölla og röltum heim. Ég var mjög ánægð með það í dag, enda búin að vera hress í allan dag. Búin að taka til og vera með familíunni.
Á morgun er ég í “fríi” og ætla að nota daginn í að gera eitthvað gáfulegt, klára fyrst af verkefni fyrir fjölskyldunefnd og svo Háskólalistann.