Archive for March, 2006

ROAD TRIP

Saturday, March 25th, 2006

Við systurnar erum lagðar af stað í langferðabíl, ferðinni er heitið til Akureyrar! Road trip, jeij :)

Duglega húsmóðirin

Thursday, March 2nd, 2006

Ég hef oft heyrt sögur frá mér eldra fólki af dugnaði húsmæðra hér áður fyrr. Sögur af mömmu sem var svo dugleg að hún vakti alla nóttina að sauma jólafötin svo börnin hefðu eitthvað að klæðast um jólin. Hún mamma sem var alltaf síðust í rúmið en samt fyrst á fætur. “Hún sefaði harma, hún vakt´er hún svaf.”

Í dag fórum við fjölskyldan og keyptum fjöldann allan af fötum á börnin, inni og útiföt. Í kvöld og frameftir nóttu er ég svo búin að sitja hér og sauma merkimiða á öll fötin og fleiri föt sem átti eftir að merkja.

Ég er þreytt og þarf að vakna snemma á morgun, en samt líður mér vel að geta talið mér trú um að ég geti allavega næstum því tilheyrt hópi þessara myndalegu húsmæðra. Nema þegar ég segi börnunum mínum þessa sögu ætla ég samt ekki að segja þeim að ég hafi byrjað svona seint á saumaskapnum vegna þess að ég hafi verið á Stúdentakjallaranum að drekka bjór fyrr um kvöldið.

Hér kemur lofsöngur um konur eins og mig:

(more…)