Archive for April, 2006

Já alveg rétt, ég á þetta blogg hérna.

Tuesday, April 25th, 2006

Það er orðið svo langt síðan ég skrifaði hingað inn og langt síðan ég kíkti hingað inn síðast að ég var eiginlega búin að gleyma að ég ætti þessa síðu.

Hef haft einstaklega litla þörf fyrir að tjá mig upp á síðkastið. Aðallega vegna þess að ég hef haft afskaplega fátt að skrifa um. Hef ekki haft mikið að segja frá mínu eigin lífi, nema hluti sem eru ótrúlega spennandi í mínum augum, en eflaust ekki í augum lesenda.

T.d. hefði ég getað bloggað um það þegar ég fékk gamla barnastólinn sem ég pússaði og bæsti og eyddi heilu kvöldi í að gerai einstaklega flottan, til að litla daman á heimilinu ætti bæði barnastól í eldhúsinu og borðstofunni. Eða sagt ykkur frá spennandi breytingum og betrumbætingum innan húss hjá mér og hvernig ég þríf íbúðina mína. Frá frábærum húsráðum til að ná ýmsum blettum af og bölvað yfir því að ná ekki að gera alla baðinnréttinguna alveg skjannahvíta með hreinsiefnunum mínum. Já og beðið ráðagóðar húsmæður aðgefa mér á góð húsráð. Ekki get ég allavega bloggað mikið um vinnuna það er allt frekar mikið trúnaðarbrot. Ég gæti líka bloggað um hvað börnin mín eru sætust og yndislegust í heimi, en ég á sér heimasíður fyrir þau þar sem ég er dugleg að lofsama þau.

Já ég hefði reyndar getað bloggað um fjárans hleðslutækið af fartölvunni minni, sem er ónýtt. Handónýtt. Dottið í sundur og í algeru tjóni. Er ekki búin að geta hlaðið tölvuna mína í mánuð og er alveg að fara yfirum af fráhvarfseinkennum.

Svo nenni ég ekki að blogga um þjóðmálin. Finnst allt bara leiðinlegt, óáhugavert eða neikvætt í fréttum þessa dagana. Langaði að fara að grenja í dag þegar ég dældi nokkrum dropum á bílinn fyrir blóðuga upphæð. Samt vil ég taka það fram, að ég dældi sjálf! En eins og þeir sem þekkja mig vita, þá er ég of mikil prinsessa til að nenna að stunda það helvíti, en braut odd af oflæti mínu í dag og dældi sjálf. Tvær stelpur sem ég vinn með sátu inn í bílnum mínum á meðan og furðuðu sig á því afhverju bílinn væri að læsast og aflæsast til skiptis. En það er oft heljarinnar vesen að læsa þessu loki aftur!

Benedikt sonur minn (sem er 5 ára) var að flytja vísu fyrir mig í gær sem hann breytti sjálfur og fannst hann sjáflur ógeðslega fyndinn. Svona var hún:

“Klukkan tíu, kyssa píu”
“Klukkan ellefu, Flengja kellingu!”

Eins gott að ég er ekki að ala upp neina karlrembu hér!

Aprílgabb

Sunday, April 2nd, 2006

Alveg er þetta magnaður siður, að gabba fólk til að hlaupa fyrsta apríl. Ég fæ alltaf óþægilega tilfinningu á þessum degi og er viss um að allir sem gera sig líklega til að hafa samskipti við mig hafi eitthvað gruggugt ráðabrugg þar að baki. Hinsvegar hefur fólk mjög sjaldan reynt að gabba mig þennan dag, kannski vegna þess hversu skeptísk ég er á þetta allt saman ;) Í ár gerði enginn tilraun til að gabba mig og ég ekki heldur að gabba neinn.

Mér finnst þetta frekar asnalegur siður, en samt er ég soddan kvikindi stundum að maður hefur ekki getað staðist freystinguna að nýta daginn í að hrella einhverjar saklausar manneskjur. Ég ætla svona í tilefni dagsins að segja ykkur frá skemmtilegasta aprílhlaupinu sem ég hef gabbað fólk í ;)

(more…)