Ég ætla líka að nota peningana til að fara með fullt af myndum í framköllun.
Ferlegt þegar maður á bara digital myndavél hvað maður er latur að senda í framköllun.
Archive for July, 2006
Já og
Thursday, July 27th, 2006Hressandi
Wednesday, July 26th, 2006Það hlaut að koma að því að skattmann myndi miskuna sig yfir mig. Hingað til hefur hann bara heimtað pening frá mér, ekki talið okkur skulda hvoru öðru neitt eða gefið mér örfáa þúsundkalla. Eftir áralanga bið varð mér nú loks af ósk minni og fáum við hjónakornin ágætis upphæð endurgreidda. Erum strax byrjuð í “hvað ætlarðu að gera við peninginn sem Frúin í Hamborg gefur þér” leik. Efst á lista hjá mér eru einhverjar flottar gallabuxur, þar sem uppáhalds buxurnar mínar eru að rifna utan af mér vegna ofnotkunar. Já og skella mér líka í smá dekur.
Aðrar góðar fréttir eru að það er farið að dimma. Ég elska dimmar nætur. Sit hér í svartamyrkri og nýt þess í botn. Nú vantar bara að skella sér í sumarbústað og liggja í heitum potti og horfa á stjörnunar og fara á trúnó.
Reunited
Friday, July 14th, 2006Eftir tæplega hálfs árs aðskilnað erum ég og elsku fartölvan mín loksins sameinuð á ný. Ástæða aðskilnaðsins var ónýtt hleðslutæki sem olli því að tölvan mín þurfti að leggjast í margra mánaða dvala. Ó hve ég saknaði hennar mikið. Við höfum haldið upp á þetta með því að reyna að eyða sem mestum tíma saman, á uppáhaldsstaðnum okkar, í horninu á sófanum. Saman höfum við endurvakið gamla rúnt hringinn á heimasíður sem voru festar inn í favorites en ég hafði gleymt slóðinni á í millitíðinni. Meðal annars þessa síðu hér þar sem ég get skráð færslur á bloggið mitt.
við höfum sett okkur nokkur markmið saman. Við ætlum að hanga á netinu, skoða síður og að endurvekja þetta blogg mitt. Einnig ætlum við að fara að vinna í lokaritgerðinni minni. En við tölvan mín höfum unnið öll verkefnin mín í háskólanum í sameiningu og lokartigerðin var eitthvað sem ég treysti mér ekki í án hennar aðstoðar.
Á eftir er ég reyndar að fara í sumarbústað, þar sem verður slappað af og skemmt sér með hóp af ungum meyjum. En þegar ég kem til baka verða nýju loforðin efnd.