Archive for August, 2006

Veikindi

Tuesday, August 22nd, 2006

Er búin að liggja heima í veikindum. Eyddi gærdeginum að mestu leyti sofandi inn í rúmi og liggjandi inn í stofu. Er búin að vera ögn hressari í dag og hef m.a. áorkað það að horfa á sjónvarpið, vafra á netinu og skoða blöðin.

Sótti Blaðið og rak augun í skemmtilega frétt á bls. 2 og get ekki annað en vitnað síðustu setninguna í henni hér:

“Lögreglan vill líka koma þeim skilaboðum áleiðis til skólabarna að virða hámarkshraða við skóla.”

Þörf áminning. Þessi skólabörn aka oft eins og brjálæðingar á leiðinni í skólann.