Archive for November, 2006

Bókhlaðan og potturinn

Tuesday, November 14th, 2006

Ég eyddi stórum hluta dagsins á bókhlöðunni. Labbaði þangað í ágætis veðri og fékk mér kaffi og með því, leitaði í gegni, las greinar og ritgerðir. Tók bækur að láni og ljósritaði greinar.. Afrekaði meira að segja í fyrsta sinn á minni skólagöngu að ljósrita ágætis fjölda af blöðum án þess að þurfa að skipta um ljósritunarvél eða blóta einhverri vélinni.

(more…)

Þetta fólk

Tuesday, November 7th, 2006

Á leiðinni að sækja krakkana í leikskólann datt ég inn í smá part af einhverjum útvarpsþætti þar sem hlustendum gafst kostur á að hringja inn og segja skoðun sína á málefnum líðandi stundar. Innflytjendamálin voru að sjálfsögðu ofarlega í huga margra.

(more…)

Óveður, leikskólafrí og Mýrin

Monday, November 6th, 2006

Ofsaveðrið gekk yfir án nokkurra vandkvæða hér á Brávallagötunni. Það voru rosaleg læti í veðrinu, sérstaklega í morgunsárið og var ótrúlega gott að draga vel fyrir og fara aftur að sofa. Börnin sváfu líka mjög vel við þessi veðurhljóð. Þegar veðrið gekk niður voru lítil ummerki, aðeins nokkrar ruslatunnur sem höfðu fokið eitthvað til.

(more…)