
Ég hef sjaldan verið jafn undrandi á mannlegu eðli eins og síðustu daga. Stóra Byrgismálið hefur nú varla farið framhjá nokkurri sálu, enda allir fjölmiðlar og netsíður uppfullar af umfjöllun um Guðmund, Byrgið, BDSM og allt sem því tengist. Hefur fólk keppst við að slúðra um þetta mál, blogga um það og skrifa brandara um það.
