Archive for March, 2007

Taska

Tuesday, March 27th, 2007

Ég er búin að vera að leita að hentugri tösku til að taka með í gönguferðir. Því þriggja barna móðir þarf oft að hafa ansi margt meðferðis. Ég sá tösku í Tiger á 400 kall og íhugaði alvarlega að kaupa hana. Hefði vel getað hugsað mér að kaupa hana, eiga hana og ganga um með hana. En hætti bara við vegna þess hve opin hún var.

Ég er ekki viss hvort ég eigi að vera glöð yfir því að vera ekki það snobbuð að ég gæti alveg hugsað mér að ganga um með 400 króna tösku úr Tiger.
Eða leið yfir því að vera það smekklaus að þykja 400 króna taska úr Tiger flott.

Eins gott að það vantaði á hana rennilás.

Emilía Turner

Thursday, March 15th, 2007

Ég og frumburðurinn skelltum okkur á skagann í gær á árshátíð Grundaskóla. Hún Emilía Anna litla frænka tók þátt í sýningunni og söng meistaralega í hlutverki Tinu Turner, var fjölskyldunni sko aldeilis til sóma. Enda upprennandi söngstjarna þar á ferðinni :)
Sýningin öll var alveg þrælskemmtileg og meiriháttar flott hjá öllum krökkunum. Ég fékk alveg tár í augun að horfa á þau, enda er ég einstaklega viðkvæm og væmin þegar kemur að krúttlegum börnum að gera krúttlega hluti :)
Litla daman var á meðan heima með pabba sínum og stóru systur. Hún drakk brjóstamjólk úr pela í fyrsta sinn og svaf svo bara vært þangað til rúmlega klukkutíma eftir að ég kom til baka. Minnsta mál í heimi þó mamma skreppi frá :)

Yndisleg dóttir fædd

Wednesday, March 14th, 2007

turtle

Já nú erum við fjölskyldan á Brávallagötunni orðin einu barninu ríkari :) En okkur fæddist yndisleg lítil dóttir fyrir rétt rúmum mánuði síðan.

Litla daman kom í heiminn þann 11 febrúar, rétt rúmum 2 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag. Hún vóg 3435 gr og mældist 52 cm. Fæðingin gekk eins og í sögu og stóðum við okkur öll eins og hetjur, mamman, pabbinn og ekki síst litlan. En hún fæddist rétt rúmum 2 klst eftir að við fórum upp á fæðingardeild, aðeins 5 dögum eftir að cerclage saumurinn var fjarlægður.

Litla dóttirin er alveg yndisleg. Svo lítil og falleg, mjúk og vel lyktandi.. með yndislega ungbarnalykt. Hún er enn voða brún og með dökkt og mikið hár og falleg blá augu. Hún er æðislega vær og góð og unir sér best kúrandi, sofandi eða súpandi brjóst. Algert meistarastykki. Enda hefur það margsannað sig með eldri eintök að þessi genablanda er sko alveg málið. :)

turtle