Archive for May, 2007

Ekki með í ár..

Thursday, May 10th, 2007

Jæja eurovison undankeppnin búin og ekki komust við Íslendingar áfram í ár. Kom mér svosem ekki á óvart, en alltaf frekar svekkjandi að vera ekki einu sinni með í aðalkeppninni.

Við fjölskyldan á Brávallagötunni erum nefnilega algerir Eurovision búðingar. Okkur finnst rosalega gaman að sitja hér og glápa á þessi ósköp og aðal búðingurinn á heimilinu er hann Benedikt. Hann er sko algert fan og finnst æðislega gaman að öllum svona keppnum.
Í kvöld hélt hann með Íslandi og Ísrael, en hélt líka með Rúmeníu sem var komin áfram. Hvorki Ísland né Ísrael komst áfram í kvöld þannig að við munum halda með Rúmeníu á laugardaginn!

En aðal atriðið á laugardaginn eru að sjálfsögðu kosningarnar og þá verður að sjálfsögðu haldið með Vinsti Grænum ;) Benedikt langaði að halda með Framsókn, því það er X-B stafurinn hans, en ég var fljót að koma vitinu fyrir barnið. En ég þekki þetta að eigin reynslu þar sem ég sem ung og ráðvilt stúlka gekk um með X-D merki því mér fannst D vera flottasti stafurinn.

En af fjölskyldunni er allt gott að frétta. Frumburðurinn er búinn að læra að lesa og er búinn að missa tvær tennur og er að fá nýjar. Miðbarnið er að læra á koppinn og farin að tala og syngja á fullu. Litlan er farin að brosa og hjala og er búin að fá nafn. En hún fékk nafnið Jóhanna Karen - fyrra nafnið í höfuðið á mömmu minni.

Ég er heima í fæðingarorlofi og verð það í allt sumar og ætla svo að vera heima með stelpuna áfram og fara í framhaldsnám, annaðhvort í haust eða eftir áramót.. Benedikt er að fara að byrja í skóla í haust og fer í Vesturbæjarskóla og það er frábært að geta verið heima og haft nægan tíma fyrir hann meðan hann er að hefja skólagönguna.

Vorum að kaupa okkur nýja myndavél, sem er alveg æðisleg. Bráðum fáið þið þá kannski að sjá frábærar myndir af krökkunum :)