Archive for June, 2007

Óléttar námsmær

Friday, June 29th, 2007

Verðandi mæður sem hafa verið í námi fyrir meðgöngu eiga engin réttindi ef þær lenda í því að veikjast á meðgöngu eða geta ekki stundað vinnu eða nám vegna áhættumeðgöngu. Konur á vinnumarkaði eiga rétt á að fara í veikindaleyfi og fá greidd full laun frá vinnuveitanda sínu á meðan og eiga auk þess rétt á því að sækja um að greiðslur frá fæðingarorlofssjóði hefjist tveimur mánuðum fyrir áætlaðan fæðingardag. Námsmenn eiga ekki rétt á neinu af þessu. Það eina sem er í boði fyrir námsmenn er að sækja um sjúkradagpeninga sem eru undir 30 þúsund krónum á mánuði. Þarna er risastórt gat í kerfinu!

Þegar ég var ófrísk af miðjubarninu mínu þá upplifði ég þetta gat af eigin raun. Ég trúði því varla að ég, rúmliggjandi í mánuð inn á sjúkrahúsi ætti í alvöru ekki rétt á neinu nema smá sjúkradagpeningum (sem á þeim tíma voru bara örlítið hærri en þau gjöld sem ég sem námsmaður var að borga fyrir leikskólavist sonar míns).

Nú er vinkona mín að upplifa þetta. Hún er í áhættumeðgöngu og má ekki vinna vegna of mikillar áhættu á fyrirburafæðingu. Hún getur ekki unnið sér inn tekjur í sumar getur ekki verið á námslánum en á ekki rétt á neinu, ekki neinum bótum, ekkert veikindaleyfi, ekkert fyrirfram greitt fæðingarorlof.

Ég vakti smá athygli á þessu í fjölskyldunefnd Shí á sínum tíma, en við náðum ekki að gera neitt og það virðist sem svo að þær nefnir sem tóku við á eftir okkur hafi ekki tekið á þessu heldur. Allavega hef ég ekki orðið vör við umræðu um þetta og svo mikið er víst að þetta hefur allavega ekki breyst. En þetta er mál sem þarf að breyta. Heilsan okkar er okkur öllum mikilvægust og þegar við lendum í veikindum og áföllum þá þurfum við að búa við fjárhagslegt öryggi og allir eiga að eiga veikindarétt. Það eiga að vera sjálfsögð mannréttindi, jafnvel þó þú sért bara námsmaður.

Leghálsmæling vs. Hnakkaþykktarmæling

Thursday, June 28th, 2007

Ég hef verið að lesa mér til um fósturskimanir á 11-14 vikna meðgöngu. Með fósturskimun er átt við ómskoðun sem er gerð til að meta hnakkaþykkt fósturs, svo er tekin blóðprufa og út frá þessum mælingum og aldri móður er gert líkindamat til að finna líkurnar á því að barnið sé með litningargalla.
Í dag er öllum konum á Íslandi boðið upp á þessar mælingar og þurfa þær sem ákveða að fara í mælinguna að borga tæplega 7000 krónur fyrir. En konum er almennt ekki boðið upp á leghálsmælingar, þó leghálsbilun sé mun algengari en litningargallar.

Afhverju er skimað fyrir litningargöllum, en ekki leghálsbilun?

(more…)

Háskólanum í Reykjavík

Wednesday, June 27th, 2007

er sönn ánægja að tilkynna MÉR að umsókn mín um meistaranám í lýðheilsu og kennslufræðum við kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík hefur verið samþykkt!!

Ég komst inn!! Ég komst inn!!! Jeij :)

(more…)

Móðursystir og móðurbróðir

Sunday, June 24th, 2007

Ég er stolt og ánægð að tilkynna það að það er von á fjölgun í stórfjölskyldunni. Og nei ég á ekki við okkur stórfjölskylduna á Brávallagötunni að þessu sinni, heldur stórstórfjölskylduna :)

(more…)

Gæsun

Saturday, June 16th, 2007

Ég var að koma heim úr vel heppnaðri gæsun. Við stelpurnar voru að gæsa Kötu vinkonu sem er að fara að gifta sig eftir rúmar tvær vikur. Þetta frekar rólegt hjá okkur og lítið um drykkju þar sem bæði ég og gæsin erum með lítil brjóstabörn. Ákváðum því frekar bara að hafa þetta notalegan og skemmtilegan dag.

(more…)

Lög og regla á klósettinu

Thursday, June 14th, 2007

Ég las frekar kjánalega frétt á mbl.is um alræmdan klósettrúlluræningja. Fréttin í heild er auðvita voða kjánaleg og bæði ránsfengurinn sem slíkur, staðsetningin og eftirnafn ræningjans. En ég fór að pæla í framhaldi af fréttinni….

Er virkilega hægt að kæra manneskju fyrir að taka klósettpappír af salerni í opinberri byggingu? Eða af almenningssalerni?

(more…)

Hetja dagsins

Wednesday, June 13th, 2007

Á forsíðu Blaðsins í dag er grein um umferðarslys og mynd og smá umfjöllun um Benna Kalla, gamlan skólafélaga minn. Hann lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi fyrir 15 árum sem hann var heppinn að sleppa lifandi frá. Hann slasaðist mjög alvarlega, missti aðra löppina og lá þungt haldinn á sjúkrahúsi í langan tíma.
Hann er það mikill maður að hann viðurkennir að slysið sem hann lenti í var engu öðru að kenna en hans eigin fávitaskap og hraðakstri. Hann var ungur töffari að keyra hratt á mótorhjóli. Honum fannst hann ósigrandi og ósnertanlegur, ódauðlegur! Og er nú að leggja sitt af mörkum að fræða fólk um alvarleika hraðaksturs.

(more…)

Hraðann eða lífið

Tuesday, June 12th, 2007

Við keyrðum frá Borgarnesi til Reykjavíkur í gærkvöldi, við lögðum seint af stað og losnuðum því við mestu sunnudagsumferðina. Það var þó einhver umferð og vorum við á tímabili hluti af bílalest sem keyrði á 90 km hraða. Það var ágætis umferð á móti og bílalestin fór áfram á um og yfir 90 kílómetrunum sem er leyfilegur hámarkshraði. Það stoppaði bílana samt ekki í því að taka fram úr hvor öðrum og sumir komu og tóku fram úr allri lestinni, með því að sikk sakka fram og aftur þegar þess þurfti alla leiðina undir Hafnarfjallinu og gengum vegakaflan sem er sérstaklega tilkynntur með stórum skiltum sem “svæði þar sem mörg slys hafa átt sér stað vegna hraðaksturs”. Eftir að hafa tekið nokkru sinnum fram úr hvor öðrum og öllum hinum þá náðu fremstu bílar að vera 17 sekúndum á undan okkur sem rákum lestina. (Já ég taldi hvað það tók okkar bíl margar sekúndur að ná staðnum sem fremstu bílar voru á á þeim tíma). Við náðum þeim svo flestum þegar þeir voru að borga sig í gegnum göngin á meðan við fórum í gegn á veglyklinum okkar. Hinum náðum við þegar við vorum komin í göngin.

(more…)

Ó Borgarnes

Monday, June 11th, 2007

Við fjölskyldan áttum langa og góða helgi í Borgarnesi. Lögðum af stað snemma á fimmtudaginn og ég fór á jarðarförina hennar ömmu. Athöfnin var mjög falleg og var amma borin til grafar í fallegu sólskins veðri í kirkjugarðinum þar sem hún hvílir nú við hliðin á manninum sínum, honum afa mínum sem dó fyrir rúmlega 25 árum. En ég kynntist honum aldrei þar sem hann dó daginn eftir eins árs afmælið mitt.

Amma mín fæddist í apríl 1918 eftir Frostaveturinn mikla og náði því 89 ára aldri. Afi átti fyrir einn son og saman eignuðust þau svo 9 börn, 6 dætur og 3 syni og nú eru afkomendur þeirra hjóna orðnir yfir 120 talsins. Amma náði háum aldri og lifði öll börnin sín. Ef það væri eitthvað sem ég gæti óskað mér í lífinu þá væri það einmitt það. (Plús auðvita hamingja og heilsa hjá mér og öllum mínum).

(more…)

Greinin í Sirkus

Sunday, June 10th, 2007

Við Hildur Arney birtumst í Sirkus með fréttablaðinu síðasta föstudag og viðtalið má lesa HÉR. Viðtalið er á bls. 10 :)