Þú ert í tvöföldu háskólanámi og með þrjú börn og akkurat vikuna þar sem mest er að gera
Þá bila bæði word forritið í tölvunni þinni og þvottavélin sem á að þvo þvottinn af 5 manna fjölskyldunni..
Þú ert í tvöföldu háskólanámi og með þrjú börn og akkurat vikuna þar sem mest er að gera
Þá bila bæði word forritið í tölvunni þinni og þvottavélin sem á að þvo þvottinn af 5 manna fjölskyldunni..
Alltaf þegar ég fer inn í Þjóðarbókhlöðuna, þá labba ég upp stigann sem er hægra megin í anddyrinu og þegar ég fer niður labba ég niður þennan sama stiga. Ég held ég hafi hreinlega aldrei þau fjölmörgu skipt sem ég heimsótt hlöðuna undan farin ár labbað upp eða niður stigann sem er á vinstri hönd þegar maður gengur inn um anddyrið.
Ég áttaði mig á þessu í dag og einhvernveginn gat ég samt ekki hugsað mér að brjóta munstrið. Þetta er bara einhver tilfinning, það er einhvernveginn réttara að nota þennan stiga.
Já lífið á bókasafninu er heldur betur spennandi og viðburðarríkt