Í dag tók ég við prófskírteininu mínu og er nú útskrifuð með BA gráðu í Uppeldis- og menntunarfræði frá félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Ég sit nú stolt með skírteinið, enda eflaust margir farnir að efast um að ég næði nokkurn tímann að útskrifast
enda komin 5 ár síðan ég innritaðist inn í skólann.
Það hefur líka ansi margt gerst á þessum 5 árum síðan ég byrjaði í náminu. Þá bjuggum við Svenni í Melselinu í Breiðholti, ásamt Benedikt litla 1 og hálfs árs einbirni og kettinum Aragorn Megasi.
Í fyrstu var ég einbeitt í að stunda nám og ljúka námi á tilsettum tíma. Svo kom ýmislegt fleira sem dreyfði huganum frá náminu, strax á fyrstu önn kom Háskólalistinn og framboð til stúdentaráðs.. sem varð svo .. já .. ansi mörg ár í röð, svo var það líka Padeia félag uppeldis og menntunarfræðinema og fjölskyldunefnd stúdentaráðs.
Svo tók við meðganga, sjúkrahúsdvöl á meðgöngudeild og vökudeild landspítalans í heila önn, fæðingarorlof og svo vinna - svo aftur önnur meðganga, veikindaleyfi og fæðingarorlof. Búið að vera meira en nóg að gera og meira en nóg af öðru að taka athyglina frá náminu.
Í tilefni dagsins buðum við stórfjölskyldan okkar allra nánustu í kaffi. Mamma mín og Svenni voru viðstödd athöfnina meðan tengdamamma og Ragga mágkona pössuðu börnin. Marta og Hjörtur komu og komu með dýrindis köku með sér og Hákon mágur líka. Ég fékk fullt af frábærum gjöfum og var ótrúlega ánægð með þetta allt saman.
Anna systir og fjölskylda komust ekki í dag, þar sem þau eru nýútskrifuð af vökudeildinni með litlu dótturina, sem fæddist fyrir viku síðan. Ég fór að heimsækja hana í vikunni og guð minn almáttugur hvað hún var lítil og sæt, fædd 9 merkur eftir rúmar 34 vikur, 9 barnabarn mömmu og pabba
Til hamingju með hana öll saman og vertu hjartanlega velkomin í heiminn litla frænka !
Svo á Helena Björk vinkona líka afmæli í dag, síðust af okkur að skríða í 27.. til hamingju með það sæta
