Archive for November, 2007

Forvarnir

Wednesday, November 21st, 2007

Í dag var forvarnardagurinn, mjög flott framtak. Forvarnarstarf er svo mikilvægt, mikilvægt að passa vel upp á krakkana og unglingana okkar.

Það vildi vel til að verkefnið sem ég fékk úthlutað í skólanum í dag fjallar um mandatory drug testing í skólum og á minn hópur að vera með debate þar sem við tökum afstöðu á móti þeim. Minn eigin sannfæringarkraftur er svo góður að eftir aðeins örstuttan lestur og var ég búin að sannfæra sjálfa mig algerlega í að vera á móti svona prófunum.

Ég held það sé mikilvægara að beita öflugum forvörnum og fræðslu og byggja á góðum samskiptum, trausti og samvinnu en ekki beita hótunum og ógna með eiturlyfjaprófunum.

Ætla samt ekki að tjá mig meira um þetta mál fyrr en allavega eftir rökræðurnar, vil ekki gefa hinum of mikið upp ef þau skyldu slysast inn á bloggið mitt ;)

Ég er í mjög áhugaverðum kúrs núna sem er um heilsu og velferð barna og unglinga og er kenndur af kennara frá BNA og er þar að leiðandi á ensku. Verður ansi erfitt að flytja verkefni og standa í rökræðum á ensku en vá hvað ég hef samt gott af því að æfa mig :)
Herra Ísland var að klárast i sjónvarpinu meðan ég skrifaði þetta (Á skjá einum plús) og ég mæli með því í tilefni af forvarnardeginum að mjög öflugu forvarnarstarfi sé beitt gegn þessum óskunda

Velkomin í heiminn

Tuesday, November 20th, 2007

Elskuleg mágkona mín og herra eru orðnir foreldrar lítillar fallegrar dóttur. Velkomin í heiminn litla dama og innilega til hamingju með hana foreldrar!
Gangi ykkur sem allra best og hafið það sem allra allra best, knús á ykkur :)

Facebook

Tuesday, November 20th, 2007

Ég er búin að útbúa mér rými á facebook . Það var eitt af - eða að vísu eina - inntökuskilyrðið fyrir þátttöku minni í mjög merkilegum leshring sem verður skipaður hópi gáfukvenna. Jahá.