Archive for December, 2007

Jól

Saturday, December 15th, 2007

Jólalagakeppni Rásar tvö er í fullum gangi núna og eru 10 lög komin í úrslit. Leifur kenndur við Djass góðvinur minn á þar eitt besta jólalagið sem ég hef heyrt lagið Jól með hljómsveitinni Krossmenn, lagið er hans en textinn er eftir meistarann Stein Steinarr. Kíkið á heimasíðuna og hlustið á lagið (aftur og aftur) og kjósið það til sigurs ef ykkur finnst það þess verðugt :) Læt textann fylgja með hér :)
Jól

Sjá, ennþá rís stjarnan, sem brennur björtust og mildust
á bládjúpum miðsvetrarhimni hins snæþakta lands.
Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu er skyldust
Og huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur manns.
Og innan skamms byrjar kappát í koti og höllu,
og klukknahringing og messur og bænargjörð,
það er kannski heimskast og andstyggilegast af öllu,
sem upp var fundið á þessari voluðu jörð.
Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið finni
Í fordæmi þínu hygginn og slóttugan mann:
Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni.
Og kauptu svo sóknarprestinn og éttu hann.

Aðventan

Monday, December 3rd, 2007

Aðventan byrjuð, heimilið orðið skreytt og allt svo huggulegt alls staðar.
Fór með börnin niður í bæ í gær að fylgjast með þegar kveikt var á Oslóartréinu og svo í kaffi og kakó með tengdó og mága. Er komin í algert jólaskap og langar bara að vera með krökkunum að jólast eitthvað. En í staðinn er ég núna upp í skóla að læra. Get að vísu ekki kvartað mikið því ég er að klára í þessari viku, það þýðir að það er alveg brjálað að gera hjá mér núna í örfáa daga í viðbót og svo bara jólafríííí :)

Vetrarkvöld í Vesturbæjarlaug

Sunday, December 2nd, 2007

Ég og Hildur Arney dóttir mín fórum í Vesturbæjarlaugina snemma í kvöld og lágum í heita pottinum og slökuðum á. Rosalega kósý og hressandi að fara í sund í skammdeginu þegar það er kalt og dimmt úti. Komum svo við í Melabúðinni og svo heim í kvöldmat með familíunni og laugardagssjónvarpsgláp. Dóttir er alger sundgarpur og henni fannst alls ekki síðra að fara að kvöldi til og á örugglega eftir að vera dugleg að draga mig oftar með sér.

Í dag fékk ég óvænt og ánægjulegt símtal frá gamalli og góðri vinkonu sem ég hef ekki heyrt í lengi.

Í dag náði ég líka loksins að sýna ákveðnum manni fram á að hann hryti jú víst bara meira og hærra en normalt er .. með upptöku máli mínu til stuðnings.

Í gær fékk ég að hitta í fyrsta sinn litlu Kamillu Ylfu á Vökudeildinni, hún er jafnvel enn dásamlegri í eigin persónu :) Sat með hana í fanginu heillengi. Takk fyrir að leyfa mér að kíkja til ykkar !! :)