Archive for January, 2008

Bloggið komið í lag

Monday, January 21st, 2008

Vegna tæknilegra vandamála hef ég ekki skrifað neitt hingað inn í lengri tíma, Lárus snillingur er búinn að laga það. Takk :)
Dagurinn í dag átti víst að vera versti dagur ársins , svona fyrir geðheilsuna, samkvæmt einhverjum vafasömum og óvísindalegum vísindamanni en ég held að óveðrið og nýji meirihlutinn ýti alveg stoðum undir þá kenningu hans. Meira ruglið.

Ég eyddi öllu kvöldinu upp í skóla að læra og samt er heimaverkefnið mitt enn jafn langt frá því að vera tilbúið.

Missti af strætó á leiðinni heim í kvöld og þurfi að bíða lengi eftir næsta vagni. Tók ásinn heim og það kom glænýr og glansandi þýskur eðalvagn sem STANNAR þegar ýtt er á takkann í stað þess að stansa. Hressandi.

Er búin að gefast upp á lærdóm í kvöld og ætla frekar að fara inn í rúm að lesa.

Ég er í leshring með öðrum fallegum og gáfuðum konum. Erum að lesa bókina Það er staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki hver annarri er eftir Lizu Marklund og Lottu Snickare.

Ég var svo líka að klára að lesa bækurnar Á ég að gæta systur minnar, Postulín -saga Freyju og Harðskafa eftir Arnald.

Hvað get ég skrifað meira.. meiri fréttir meiri fréttir..

Hárið er orðið ljóst og stutt, miklu flottara, fataskápur er orðinn nokkrum útsöluvörum ríkari og er nýja kápan mín uppáhaldið.

Var að panta mér bækur og taubleyjur, netverslun er snilld.

Er á leiðinni til Köben og Marakkó í vor !!!

Börnin best og frábærust eins og alltaf. Sonur orðinn fótboltahetja og vonarstjarna fjölskyldunnar sem sér fyrir sér sumarhús á spáni og frímiða á völlinn hjá Barcelona, dætur eiga afmæli innann fárra daga og báðar að vaxa alltof hratt.

Farin inn í rúm að lesa og sofna við hljóðið í regninu og rokinu. Vona að við sofum ekki yfir okkur, familían sefur alltaf alltof vel og alltof lengi við hljóði í óveðri :P