Archive for February, 2008

Gamli góði Latibær

Thursday, February 28th, 2008

Þegar elsti minn var lítill þá vorum við mjög hrifin af Latabæ, einfaldar og skemmtilegar persónur, skemmtileg lög og boðskapur í þessu öllu saman. Með árunum hefur svo Latibær orðið alltof amerískur og mikill glamúr og farið of langt frá því upprunalega.

Við fengum nýlega fyrstu tvö Latabæjarleikritin (Áfram Latibær og Glanni Glæpur í Latabæ) og einnig nýju þættina. Krakkarnir mínir og vinir þeirra á öllu aldri hafi setið límd við gömlu leikritin og biðja um að fá að sjá þau aftur og aftur meðan nýju þættirinir eru ekki eins vinsælir.

Mér finnst Latibær einmitt voða góð pæling en hafa misst sig aðeins í markaðssetningu og er sammála krökkunum að gamli Latibær var miklu betri :)