Archive for March, 2008

Montfærsla

Thursday, March 27th, 2008

Ég vissi það, ég er í raun óuppgötvaður snillingur í aðferðafræði og megindlegum rannsóknaraðferðum - og aðhvarfsgreiningarmódel eru mín sérgrein.

Einkunargjöf dagsins staðfesti það. Það er ágættis gulrót til að leggja sama metnað í lokaverkefni áfangans sem ég þarf að skila á næstu dögum.

Ætla að nota þess montfærslu til að monta mig líka á Mörtu minni sem stóð sig alveg ótrúlega vel í lokaprófunum sínum og var ansi ofarlega. Hún er alger hetja. Hún verður án efa ein af bestu hjúkkum framtíðarinnar :)

Gæsahúð

Tuesday, March 25th, 2008

The Doors - The End Live At The Isle Of Wight Festival 1970

Light My Fire - The Doors

Að páskafríi loknu

Monday, March 24th, 2008

Verkefni um sykursýki 2 hjá öldruðu fólki er svo ofurspennandi að ég næ varla andanum. Er svo glöð að núna nýkomin úr páskafrí í sveitinni - að þurfa ekki að liggja heima, slaka á og horfa á sjónvarpið - heldur fæ ég að vera upp í skóla að læra.. og drekka mikið kaffi.

Kannski verð ég glöð þegar ég verð gömul að hafa lært þetta svona vel.

Pakki

Thursday, March 20th, 2008

“Vá mamma sjáðu fínt xxxxxxx” var það fyrsta sem ég heyrði í morgun um leið og einhverju var sveiflað framan í mig og sá dætur mínar sitja hamingjusamar í rúminu mínu með fína pakkann sem sú eldri hafði fundið frammi - búnar að opna hann.

Fína pakkann sem við ætlum að gefa frænku þeirra í skírnargjöf á eftir.

Prinsessa

Thursday, March 20th, 2008

“Mamma, hvað heitir prinsessan?” spurði 3 ára dóttir mín og benti á Eivør Pálsdóttur á íslensku tónlistarverðlaununum í gær. Ef það er ekki hrós að láta 3 ára stelpu halda að maður sé prinsessa þá veit ég ekki hvað. Enda var Eivør glæsileg eins og vanalega, í flottum kjól og með síða liðaða lokka um allt eins og ekta prinessa.

Langar í diskinn hennar.

Rúllandi klósettpappírsrúllur

Wednesday, March 19th, 2008

Í gærkvöldi var ég stödd út í búð að kaupa m.a. klósettpappír. Ég hélt einhvernveginn að klósettpappírsinnkaup gætu aldrei orðið frásögufærandi, en sumir eru bara óheppnari en aðrir greinilega.

Ég tók stóra pakkningu af Andrex klósettpappír og var búin að labba nokkur skref í búðinni þegar ég finn hvað pokinn léttist og finn eitthvað detta. Það var komið risastórt gat á botninn - með þeim afleiðingum að klósettpappírinn rúllaði út um allt gólf. Ég nennti nú ekki að standa í þessari vitleysu, fannst þetta frekar neyðarlegt og sá að fólk horfði vorkunnar augum á mig, tók þetta að sjálfsögðu saman en ákvað að kaupa ekki þennan pappír heldur valdi mér nýjan heila pakkningu. Lét svo afgreiðslumann vita sem tók ónýta pakkann fyrir mig.

Þegar ég kem heim fæ ég ekki stæði alveg við húsið og þarf því að labba smá spotta og þegar ég er komi í efstu tröppurnar (upp á annari hæð) finn ég allt í einu eitthvað léttast og heyri svo í klósettpappírsrúllunum skoppa niður allan stigann. Ég dæsi og fer inn með innkaupapokann og fer svo og tíni upp rúllurnar niður stigann. “Hvað eiga að vera margar svona rúllur í svona pakka” er svo þar fyrsta sem sambýlsimaðurinn heyrir mig hrópa þegar ég kem heim inn á milli einhvers blóts um lélegar pakkningar. “Allavega ekki bara sjö” segi ég, því sjö er undir engum kringumstæðum góð tala í svona pakkningar. Kannski 6, 8 eða 9.. en aldrei sjö!! Maðurinn er viss um að 9 sé líklegasta talan og eftir að hafa skoðað stigaganginn alla leið niður í kjalllara kemst ég að þeirri niðurstöðu að pappírinn hljóti að vera úti.

Ég varð því konan sem hljóp út í myrkrið á bolnum og leitaði á gagnstéttinni þar til ég fann 2 rúllur - við bílinn minn og fór með þær heim… (kreppan og pappírinn margra dýrmætra króna virði) og vonaði að það væru sem fæstir nágrannar að horfa. Dró þá ályktun að gat hafi opnast á pakninguna við bílinn en ég óafvitandi haldið innkaupapokanum uppað svo fleiri rúllur hafi ekki dottið strax.

Í ljósi þessara reynslu minnar verð ég gefa þessum (nýju?) pakkningum frá hvolpnum Andrex mjög lélega dóma. Hversu lélegar þurfa pakkningarnar að vera til að botninn hrinji bara undan þeim með því að halda á þeim í nokkrar sekúndur. Er hissa að þær komust heilar í búðina.

Heimsóknir frá Jesú

Tuesday, March 18th, 2008

Fyrir nokkrum dögum gerðist þá undarlegi atburður að þegar ég kveikti ljósið niðri í þvottahúsi sá ég hvíta veru þar á gólfinu. Okkur brá báðum mikið og stökk veran rakleiðis upp á borð og skaust út um kjallaragluggann. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á að þetta var Jesú sem stóð þarna ljóslifandi fyrir framan mig.

Það var ekki fyrr en eftir að feðgarnir fengu heimsókn frá honum að ég áttaði mig á því hver þetta hefði verið. Jesú birstist þeim eitt kvöldið óvænt á stofugólfinu og reyndi að stökkva út um gluggann á annari hæð. Þeir feðgar náðu að klófesta hann og koma honum út.

Jesú hefur nokkru sinnum heimsótt okkur í gegnum tíðina. Einu sinni bankaði hann á hurðina á íbúðinni okkar við mikla undrun allra heimilismanna og einu sinni gerði hann sér lítið fyrir og pissaði á útidyrahurðina mína. En fyrir heimsóknir vikunnar þá hafði ég lítið séð af þessum ferfætta nágranna mínum í vetur.

Skóblogg um viðburði helgar

Tuesday, March 18th, 2008

Þetta var ansi löng og viðburðarrík helgi hér á bæ, enda loksins komið veður til að gera eitthvað af viti í. Er komin í algeran sumarfíling. Sambýlismaður er lítið sem ekkert búinn að vera heima síðustu daga og viku, aðallega vegna vinnu og svo fór hann á Akureyri um helgina. .

Á föstudagskvöldið skelltum við Marta okkur í sund með alla krakkana og slökuðum á í heitapottinum. Jóhönnu Karen (1 árs) fannst þetta ferlega notarlegt og lá bara á bakinu og slakaði á og fannst þetta bara æði. Við höfum verið frekar dugleg að fara í sund í vetur en litlan hefur ekki fengið að koma með síðan í sumar.

Á laugardaginn fór ég svo á mótmælin á Ingólfstorgi. Ég og dætur fórum ásamt Mörtu og syni. Freyja Sigrún (3 ára) dóttir Auðar og Freys var með uppsteyti og hrópaði slagorð hernarðarandstæðinga - greinilega lítill róttæklingur þar á ferð sem er greininlega dóttir foreldra sinna. En börnin okkar Mörtu tóku þessu mjög hátíðlega og stóðu grafkyrr með alvarlegan svip og bækling í höndum. Þau létu svo miða með nöfnum fallinna borgara ofan í kistu sem var borin í burt í göngunni. Dóttir mín meðtók þó eitthvað af slagorðunum og var í bílnum seinna um helgina að tauta eitthvað álíka. Steinunn flutti ræðu sem var svo flott að ég bara verð að linka í hana hér og þið sem voruð ekki verðið að lesa hana. Hún var líka einstaklega áhrifarík í flutingi hennar.

Titilinn fáviti helgarinnar deila saman stelpan (sem er einnig ökumaður helgarinnar) sem var að keyra fyrir utan stjórnarráðið í mótmælunum - sveigði yfir á akgrein og keyrði dónalega nálægt konu með barnavagn.. og hélt áfram að keyra - á akgreininni sem löggan var búin að loka!! og sýndi pirring með handahreyfingum og bensíngjafarhljóðum og flautaði svo á manninn sem var fyrir henni labbandi þarna á götunni … sem var lögregluþjónn. Hver flautar á löggu?? Hinn fávitinn er gaurinn sem var upp á brunarústunum þar sem húsin stóðu og var að henda niður ljósaperum af jólaseríu niður á götunna þar sem fólkið var. Hann fær samt frumleikaverðlaun ólíkt óþolinmóða ökumanninum.

Eftir friðargönguna fórum við Marta og Soffía ásamt börnum svo í Laugarvegsgöngutúr í anda sumarsins, hitti Eldeyju Hrefnu í fyrsta sinn og hún er alveg jafn mikil dúlla og hún virkaði á myndunum. Einstaklega krúttlegt barn :) kíktum á kaffi Hljómalind sem er búið að opna á nýjum stað og er með mjög góðar aðstæður fyrir litla brjálæðinga að hlaupa um allt og leika sér að dýrindis leikföngum frá börnum náttúrunnar og fara í draugaleiki með slæður og borða dýrindis lífrænar veitingar. Við héldum áfram að vera meðvitaðir jarðaríbúar og fórum í Fair trade búðina og keyptum þar afmælisgjafir fyrir veislur helgarinnar, handunnar gjafavörur.

Fórum svo í tvö afmæli, til Gabríels 2 ára á laugardeginum og Freyju Sigrúnar 3 ára á sunnudeginum. Dýrindis veislur með einhverjum rosalegum veitingum. Gáfum börnum dásamlegu fair trade vörurnar og hafði sérstaklega gaman að því að gefa Freyjunni flautu úr bambus. Þar sem faðir hennar hefur oft lýst því yfir að fólk sem gefi hávaðaleikföng sé réttdræpanlegt. En hljóðfæri sem gefið er til að göfga tónlistargreind og listræna hæfileika barnsins er ekki það sama og hávaðaleikfang. Hohoho.

Eftir afmæið á laugardag hélt ég áfram í að láta eins og það væri komið sumar og fór með börn í laugarvegsrölt, á tjörnina að skoða fuglana, í alþingishúsið að skoða íslandslíkanið og á róló. Fórum svo heim og fengum okkur kvöldmat og fengum svo tvo gaura af neðri hæðinni í pössun, settum dýnur í stofuna og héldum videokvöld.

Í dag framlengdi ég svo helginni með því að láta miðjubarnið taka sér frí í leikskólanum, enda allir aðrir í páskafríi. Reyndi svo í dag, þegar litlan svaf að setjast við tölvuna að gera verkefni um aðhvarfsgreiningu sem ég skilaði á miðnætti. Það rétt hafðist. Hefði átt að eyða aðeins minni tíma á facebook við mannsal og meiri tíma í að læra. Sambýlismaður var að koma að norðan rétt í þessu og ég ætla að fá hann til að horfa á einn lost þátt með mér núna. Já og LOST er btw. orðið alveg fáránlega spennandi núna. Heví nýjustu þætttirnir!.

Friður

Saturday, March 15th, 2008

Næring

Thursday, March 13th, 2008

Í gær kom Marta til mín og eldaði dýrindis beikon súpu, í dag hitaði ég hana svo upp og neytti í ÖLL mál. Fór í næringarfræðitíma og gerði svo hópverkefni um átak til að auka trefjaneyslu landans. Drakk mikið kaffi á meðan og fór ekki eftir þeim ráðleggingum sem bæði voru margendurteknar í fyrirlestrinum og verkefninu. Eins gott að beikonsúpan var full af allskonar grænmeti og hollustu. Annars hefði ég bara drukkið kaffi í dag, borðað eitt brauð og eitt súkkulaðistykki. Í næsta verkefni á ég að halda matardagbók, vigta allt sem ég borða og skrá hvert einasta gramm sem fer inn fyrir mínar varir - og bera þetta svo við ráðlagðan dagskammt miðaðan við minn aldur og fyrri störf.

Örverpið mitt er farið í hungurverkfall og hefur það staðið yfir í þrjá daga. Hún hefur að vísu farið ansi frjálslega með þá drykkju sem leyfð er í hungurverkfalli og drukkuð móðurmjólkina af bestu lyst. Ég hef verið að vega kostina að annarsvegar að fara hörðu leiðina og neita henni um drykki og gá hvort hún láti sér segjast og fari að borða - eða að verða að kröfum hennar. Ég held hún sé að mótmæla háu verði á matvöru á íslenskum markaði og óneytendavænum upplýsingum um innihald matvæla, þannig að ég veit ekki hvort ég gæti þó ég vildi orðið að þeim. Ætla því að sjá til hvernig málin þróast og hvort hún fari nú ekki að borða aðeins meira. En í dag borðaði hún nokkra bita, spítti út úr sér helmingnum af öllum mat, henti í gólfið góðum parti og sló ansi margar skeiðar með hinu ýsma innihaldi úr höndunum á mér jafn óðum og þær komust að munninum á henni - ýmist hlæjandi eða kvartandi eftir skapi hverju sinni. Þegar ég var í skólanum þá borðaði hún vel hjá pabba sínum, svo það er spurning hvort þessu sé eingöngu beint til mín þar sem hún veit að ég get gefið henni mun betri kost ef hún neitar nógu lengi hinu. Ætla bara rétt að vona að hún láti ekki svona líka á morgun.