Ég sit upp í CCP við tölvuna (meðan Svenni klárar smá vinnu) - með bjór í hönd og bíð þess að klukkan verði 20:45 en þá er brottför til Keflavíkur. Rétt fyrir miðnætti í kvöld mun svo vélin leggja af stað til Marrakech sem er í Marocco í Norður Afríku ![]()
Við fljúgum inn í nóttina og verðum komin um nótt/morgunsárið til Marocco og munum byrja daginn á því að slaka á í SPA og förum svo á hótelið um miðjan dag. Ég ætla að byrja á því að liggja á sundlaugarbakkanum og sötra kokteil og sleikja sólina (en það er btw rúmlega 30 stiga hita þarna um þetta leiti)
Svenni setti inn fullt af monnt linkum á bloggið sitt með linka á staðina sem við verðum á. Endielga kíkið á það og ýmindið ykkur mig á bikíni inn á myndunum af sundlaugum og spa - meigið samt alveg frekar ýminda ykkur mig í meira viðeigandi klæðnaði á veitingarhúsunum og börunum. Kíkið á bloggið - www.svennih.com (Ég myndi setja link en vinnutölvan hér er eitthvað að neita mér um það).
ok ji hvað ég hlakka til ég skelf hér. Var MJÖG erfitt að kveðja krakkana
en þau verða í góðum höndum með ömmum sínum, öfum og frændsystkinum - vinum og nágrönnum og ég veit ekki hvað. Allir ætluðu að hjálpa til
Amma Hafdís verður með þau fyrst og svo Amma Jóhanna.
En nú var verið að tilkynna að fólk væri farið að hlaða töskum í rútununa….. Ég kveð því og heyri í ykkur þegar ég kem heim - eða ef ég blogga smá úr sólinni
:D

