Börn í hundrað ár og helgi í Borgarnesi

Sýningin Börn í hundrað ár opnaði um helgina í Safnahúsinu í Borgarnesi . Mjög skemmtileg sýnig sem höfðar líka mjög vel til barnanna. Ég, mamma og Helena vinkona fórum þangað með krakkana og þeim fannst þetta allt mjög spennandi. En sýningin er eins og nafnið gefur til kynna um börn síðustu öldina og voru til sýnis stórar ljósmyndir og allskyns munir og leikföng, gömul baðstofa eins og fólkið bjó í í gamla daga - sem okkur fannst nú eiginlega bara meira kósý heldur en nýtísku unglingaherbergið við hliðiná. Mér þætti nú ansi kósý að vera öll saman í svona herbergi ;) Sáum líka ljósmyndasýninguna Sjálfsmyndir unglings eftir unga stelpu úr Borgarnesi sem var mjög flott, mjög hæfileikarík stelpa þar á ferð. Tók svo bækur á bókasafninu með í nesti heim.

Við fjölskyldan eyddum helginni í Borgarnesi. Fórum í morgunmat í Skallagrímsgarði á laugardagsmorguninn og við stelpurnar í fjölskyldunni skelltum okkur svo í kvennahlaupið. Brynja systir var líka að útskrifast á laugardaginn og ég var sjálfskipuð í hlutverk ljósmyndara og elti hana hvert skref. Hún og Benedikt sameiðust svo og héldu veislu heima hjá mömmu og pabba. Eyddum svo helginni að mestu leyti bara í rólegheitum og fórum í sund og höfðum það gott. Enda alltaf svo gott að fara heim í nesið :)

Comments are closed.