Félag fyrirburaforeldra er loksins orðið að veruleika og hefur verið formlega stofnað. Var frábær mæting á stofnfundinn og sérstaklega gaman hvað margir nýjir komu, þeas fólk sem ég þekkti ekki fyrir.
Í síðustu viku flutti ég lokaverkefnið í síðasta áfanga annarinnar og er því hálfnuð í meistaranáminu og jafnframt komin í sumarfrí frá skólanum. Búin að kynnast fullt af frábærum konum í skólanum og maður var bara pínu stoltur að sjá þessi flottu verkefni sem voru flutt. Erum allar sammála um að við séum sko flottastar og bestar þarna
Ég er byrjuð að vinna hjá Tal og búin að vera að vinna þar á kvöldin síðustu tvær vikurnar.
Búin að fá mér hjólavagn fyrir tvö börn þannig að nú get ég hjólað um bæinn með stelpurnar í vagninum. Það er alveg það dásamlegasta. Gaman, umhverfisvænt og hagkvæmt!. Afborganir af bílnum hafa hækkað, bensín hefur hækka, auk þess sem stöðumælavörður situr um götuna mína og skellir sekt á gluggann ef maður dirfist að leggja utan stæða. Þar sem stæðin eru miklu færri en íbúðirnar við götuna mína, auk þess sem starfsfólk og gestir á Grund leggja hér þá er þetta orðið ferlegt ástand. Hringsólandi eftir stæðum eða farandi út aftur til að leggja upp á nýtt ef stæði losnar. Tek ekki þátt í þessu og ætla bara að hjóla í staðinn. Fórum í hjólatúr í dag og stelpurnar alveg elska þetta og hrópa á mig að hjóla hraðar og hraðar 
Vorum annars bara að koma heim, vorum á Írskum dögum á skaganum og enduðum svo í grilli hjá Brynju systur, allar systurnar og öll börnin, voða fjör.
Kveð í bili