Lagið um Drífu

Hljómsveitin Veðurguðirnir hefur samið lag um “mig” og lít ég á gjörninginn sem persónulega árás á mig.


“Lagið og textinn við Drífu, er eftir Ingó sjálfan rétt eins og Bahama. Hann segir textann segja ákveðna sögu. „Ekki beint ástarsaga. Jú, kannski ástarsaga en í senn ádeila á einhverja Drífu sem er snarvitlaus.” Hann segir þó ekki um neina ákveðna Drífu að ræða en: „Menn geta getið í eyðurnar ef þeir þekkja einhverjar klikkaðar Drífur.”

Lagið er ekki bara með lélegum texta, heldur einnig mjög lélegri laglínu og hlakka ég mikið til að hlusta á alla syngja þetta lag fyrir mig við öll tækifæri næstu vikur og mánuði.

Hægt er að hlusta á níðvísuna á myspace síðu hljómsveitarinnar og þætti mér vænt um ef sem flestir gætu bara get it over with, hlustað á lagið og hlegið að mér svo brandarinn klárist aðeins fyrr en Drífasig djókið sem enn þykir fyndið eftir 27 ár.

Ég er viss um að þetta er hefnd mín fyrir að láta mág minn alltaf fá á heilann hræðileg lög á borð við Bahama og Þetta er lífið með Geir Ólafs.

2 Responses to “Lagið um Drífu”

  1. Ragga says:

    Híhí greyið mitt ;)

  2. helena og JOI says:

    muhahahahha joi do ur hlatri fekk flasbak fra kroknum 97 eða þar um kring hehhehe

    atti að skila kveðju fra gamla runt felaganum ;).sem atti reyndar ekki kvota ne volvo og neitar að þu hafir skilið eftir peysu hja honum

    muhahhahahahahahhahahah

    heyrumst siðar skviza