Við erum að flytja. Verður mikill söknuður og sorg að fara af Brávallagötunni. Æðisleg íbúð í frábæru hverfi með frábæra nágranna. Við erum búin að búa hér í 3 ár og orðin ansi heimavön. En svona eru hlutirnir bara og við verðum bara að líta á þetta sem tækifæri. Gæti verið upphafið á einhverju enn betra.
Við förum þó ekki langt, það kom ekki til greina að fara úr elsku Vesturbænum okkar - förum út á Granda og verðum þar í kósí og flottri íbúð á mjög góðum stað. Erum um 300-600 metra frá leik og grunnskólunum og rétt hjá KR vellinum og stutt fyrir guttann að fara á æfingarnar. Ég fæ draum minn um fataherbergi loksins uppfyllt - þó það sé ekki jafn stórt og í sex and the city þá er það allavega fataherbergi ![]()
En hér með óska ég eftir tómum pappakössum í tonnatali til að koma þessari búslóð fyrir og eftir aðstoð frá góðum vinum við að flytja og að passa börnin meðan við erum að flytja og þrífa íbúðina
Börn eru velkomin heim til mín á þri,mið,fim,fös,lau og svo náttúrulega í afmæli á sunnudag en þá ætlast ég til að amk annað foreldri fylgi með og aðstoði við kökuát
Takk kærlega fyrir það
Verð í bandi við þig
HA? Eruð þið að flytja??? Hva hvu hvert???? hohoho
sjáumst.. bloggaðu meira upptekna kona