
Hildur Arney og Jóhanna Karen að skoða bækur
Í næstu viku eiga þessar flottu dætur mína afmæli. Þann 11. verður Jóhanna Karen 2 ára og þann 14. verður Hildur Arney 4 ára.
Einar magni sonur hennar Brynju systur verður einnig 4 þann 14. enda fæddur á sama tíma og Hildur og stefnir allt í stærðar afmælispartý með þremur afmælisbörnum.
Ég þarf að fara að dusta rykið af uppskriftarbókum og töfra fram eitthvað flott fyrir krakkana
Ætla ekki að leyfa Svenna að sjá um það einn í ár. En hann er svo ofurduglegur í eldhúsinu alltaf hreint að ég er nánast hætt að gera nokkurn skapaðan hlut þar. Er best í að gera Rice crispies kökur og kann að poppa fullkomið skjannahvítt popp meðan Svenni poppar gulu og svörtu poppi. En það er hér um bil það eina sem ég er betri en hann í
Þegar kemur að bakstri á hann yfirleitt flotta köku en ég eitthvað misheppnað sem annaðhvort lyfti sér ekki eða brann, enda virðist mér það lífsins ómögulegt að fylgja uppskrift nákvæmlega. En það er spurning hvort ég nái að breyta ýmind minni í ár.. ef ekki get ég allavega mallað smá Rice crispies og poppað