
Jóhanna Karen 2 ára
Jóhanna Karen dóttir mín átti afmæli í gær og er orðin 2 ára. Að því tilefni var vefdagbókin á heimasíðu systkinanna fyllt af myndum og lofsöngvum um Jójó litlu
Undarlegt að eiga bara svona “stór” börn. En ég lít enn á mig sem svo mikla ungamömmu. Við höfum líka verið með lítil börn svo lengi.. áður en Hildur Arney varð 2 ára þá var Jóhanna fædd.. Það verður skrítið að vera ekki með neitt bleyjubarn á heimilinu þegar litla hættir alfarið á bleyjunni. Hún er nú á svo skemmtilegu skeiði, að læra að tala svo mikið og tjá sig, gaman að fylgjast með henni á hverjum einasta degi
Innilega til hamingju með skottuna þína :o)
Kær kveðja Heiða Ósk og krílin hennar.