Nýlega gerðum við verkefni í skólanum þar sem við rýndum í málfar fólks í sjónvarpi og í opinberum skrifum. Minn hópur fékk það hlutverk að skoða bloggsíðurnar og lá ég yfir fjölda síðna og gagnrýndi hvern einasta staf sem skrifaður var. Við áttum að skoða hvort aldur, kyn, menntun og staða hefðu áhrif á hvernig fólk talar og skrifar, hvort fólk noti málhækjur og veikt mál. Fyrir þetta verkefni hafði ég lítið spáð í skrif mín hér á síðunni út frá þessu. Eins og sést á síðunni hef ég reyndar lítið spáð í skrif hér yfirhöfuð
Spurning hvort verkefnið fá mig til að vanda skrif mín og málfar betur hér á síðunni? Ég er nú ekki viss um það, en það fékk mig allavega til að blogga aftur. Það og yfirfærsla kommúnunnar yfir á Worldpress. Legg til að það verði kommúnupartý fljótlega og þá get ég borgað Óla uppsafnaðar bjórskuldir fyrir bloggsíðuna
Archive for the ‘Uncategorized’ Category
Blogg
Wednesday, February 4th, 2009Flutningur
Wednesday, August 20th, 2008Við erum að flytja. Verður mikill söknuður og sorg að fara af Brávallagötunni. Æðisleg íbúð í frábæru hverfi með frábæra nágranna. Við erum búin að búa hér í 3 ár og orðin ansi heimavön. En svona eru hlutirnir bara og við verðum bara að líta á þetta sem tækifæri. Gæti verið upphafið á einhverju enn betra.
Við förum þó ekki langt, það kom ekki til greina að fara úr elsku Vesturbænum okkar - förum út á Granda og verðum þar í kósí og flottri íbúð á mjög góðum stað. Erum um 300-600 metra frá leik og grunnskólunum og rétt hjá KR vellinum og stutt fyrir guttann að fara á æfingarnar. Ég fæ draum minn um fataherbergi loksins uppfyllt - þó það sé ekki jafn stórt og í sex and the city þá er það allavega fataherbergi ![]()
En hér með óska ég eftir tómum pappakössum í tonnatali til að koma þessari búslóð fyrir og eftir aðstoð frá góðum vinum við að flytja og að passa börnin meðan við erum að flytja og þrífa íbúðina
Lagið um Drífu
Tuesday, July 29th, 2008Hljómsveitin Veðurguðirnir hefur samið lag um “mig” og lít ég á gjörninginn sem persónulega árás á mig.
Lagið er ekki bara með lélegum texta, heldur einnig mjög lélegri laglínu og hlakka ég mikið til að hlusta á alla syngja þetta lag fyrir mig við öll tækifæri næstu vikur og mánuði.
Hægt er að hlusta á níðvísuna á myspace síðu hljómsveitarinnar og þætti mér vænt um ef sem flestir gætu bara get it over with, hlustað á lagið og hlegið að mér svo brandarinn klárist aðeins fyrr en Drífasig djókið sem enn þykir fyndið eftir 27 ár.
Ég er viss um að þetta er hefnd mín fyrir að láta mág minn alltaf fá á heilann hræðileg lög á borð við Bahama og Þetta er lífið með Geir Ólafs.
Míní mí
Sunday, July 27th, 2008
Ef það væri til mynd af Jóhönnu dóttur minni með gifs á báðum fótum, sitjandi í gömlum kóflóttum sófa - þá liti myndin nákvæmlega svona út.
Finnst ykkur við ekki líkar?
Dásamlegir hjólavagnar og enn dásamlegri börn
Friday, July 18th, 2008Það er alveg fátt dásamlegra og skemmtilegra en að hjóla um með krílin í hjólavagni aftan í.
Hildur Arney og Matthías Hjörtur (Mörtusonur) í stuði
Systurnar Hildur og Jóhanna krúttlegar og smá feimnar við myndavélina
Jóhanna Karen og Matthías Hjörtur sæt saman (Jóhanna eitthvað ósátt við nýja fína hjálminn sinn)
Sumar og sól
Tuesday, July 15th, 2008
Benedikt og Jóhanna Karen í Nauthólsvíkinni :) Svo góð systkinin saman.
Hildur Arney og Benedikt - Krúttleg á ströndinni í baðsloppunum sínum
Benedikt stóri gaurinn minn, orðinn 7 ára og búinn að missa fullt af tönnum og er alger fótboltasnillingur:)
Hildur Arney miðjustelpan mín, fyriburastelpan mín. Var svo lítil og orðin svo stór og algjört bjútí eins og þið sjáið. Er líka alger gaur.
Jóhanna Karen litlan mín, litla krullumús. Hún er nýfarin að labba og er algert kúrudýr og eins og þið sjáið algert mega krútt.
Systurnar þreyttar á leiðinni heim :) Eftir æðislegan dag á stöndinni.
Ég stend með ljósmæðrum
Wednesday, July 9th, 2008
Ljósmæður þjónusta konur og börn á mikilvægustu augnablikum lífsins. Launakjör þeirra eru til marks um að hvorki þarfir né störf kvenna séu metin að verðleikum. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er því lofað að kjör kvenna hjá hinu opinbera verði endurmetin, einkum hjá þeim stéttum þar sem konur eru í miklum meirihluta. Ljósmæður eru eingöngu konur.”
Ég hef mikla reynslu af þjónustu ljósmæðra, enda hef ég gengið með og fætt þrjú börn og verið í áhættumeðgöngu og lá lengi inni á meðgöngudeild. Ég hef kynnst alveg ótrúlega mörgum frábærum ljósmæðrum á þessum tíma. Ljósmæðurnar (og ljósuneminn) sem tóku á móti börnunum mínum voru allar frábærar og hjálpuðu mér mikið í fæðingunum. Ljósmæðurnar (og nemarnir) á meðgöngudeildinni voru líka algert gull og hugsuðu mjög vel um mig, studdu mig og dekruðu við mig meðan ég lá þarna vikum saman í rúmlegu. Störf þeirra og annarra inn á sjúkrahúsunum eru með mikilvægustu störfum samfélagsins og það er eiginlega bara skammarlegt að þetta fólk skuli ekki fá greitt laun í samræmi við ábyrgð og menntun.
Blikkandi ljós
Sunday, July 6th, 2008Á Vesturlandsvegi á leið okkar inn í bæinn í gær mættum ég og fjölskyldan einhverjum brjálæðingi á ofsahraða með fjölda lögreglubíla í eftirdragi. Fréttin á mbl.is segir að þetta hafi verið einhver ölvaður maður á stolnum bíl. Hér kemur svo smá tilvitnanir úr fréttinni:
Hvernig kæru og dóm ætli hann fái? Á svona fólk ekki að vera kært fyrir tilraun til manndráps?
Viðbót: og þessi!
Smá uppdeit
Saturday, July 5th, 2008Félag fyrirburaforeldra er loksins orðið að veruleika og hefur verið formlega stofnað. Var frábær mæting á stofnfundinn og sérstaklega gaman hvað margir nýjir komu, þeas fólk sem ég þekkti ekki fyrir.
Í síðustu viku flutti ég lokaverkefnið í síðasta áfanga annarinnar og er því hálfnuð í meistaranáminu og jafnframt komin í sumarfrí frá skólanum. Búin að kynnast fullt af frábærum konum í skólanum og maður var bara pínu stoltur að sjá þessi flottu verkefni sem voru flutt. Erum allar sammála um að við séum sko flottastar og bestar þarna
Ég er byrjuð að vinna hjá Tal og búin að vera að vinna þar á kvöldin síðustu tvær vikurnar.
Búin að fá mér hjólavagn fyrir tvö börn þannig að nú get ég hjólað um bæinn með stelpurnar í vagninum. Það er alveg það dásamlegasta. Gaman, umhverfisvænt og hagkvæmt!. Afborganir af bílnum hafa hækkað, bensín hefur hækka, auk þess sem stöðumælavörður situr um götuna mína og skellir sekt á gluggann ef maður dirfist að leggja utan stæða. Þar sem stæðin eru miklu færri en íbúðirnar við götuna mína, auk þess sem starfsfólk og gestir á Grund leggja hér þá er þetta orðið ferlegt ástand. Hringsólandi eftir stæðum eða farandi út aftur til að leggja upp á nýtt ef stæði losnar. Tek ekki þátt í þessu og ætla bara að hjóla í staðinn. Fórum í hjólatúr í dag og stelpurnar alveg elska þetta og hrópa á mig að hjóla hraðar og hraðar ![]()
Vorum annars bara að koma heim, vorum á Írskum dögum á skaganum og enduðum svo í grilli hjá Brynju systur, allar systurnar og öll börnin, voða fjör.
Kveð í bili
Félag fyrirburaforeldra - stofnfundur í kvöld kl. 21:00
Friday, June 27th, 2008Stofnfundur Félags fyrirburaforeldra verður haldinn í kvöld föstudaginn 27. júní kl. 21:00
Fundurinn verður haldinn heima hjá mér að Brávallagötu 14 í Vesturbæ Reykjavíkur og þeir sem hafa áhuga á að koma eru vinsamlega beðnir um að senda mér póst eða hringja og ég gef ykkur nánari upplýsingar þar.
Ef þið hafið áhuga á að vera með í félaginu en komist ekki í kvöld þá get ég enga að síður skráð ykkur sem félaga ef þið sendið mér bara línu með persónuupplýsingum (best að fá nafn, kennitölu, heimilsfang, síma og upplýsingar um barn/börn til að hafa sem bestar upplýsingar um alla félaga). Ég bæti ykkur þá á póstlistann okkar þannig að þið getið fylgst með framhaldinu þar. En nú þegar er kominn mjög stór hópur á póstlistann og margir félagar búnir að skrá sig og boða komu sína á fundinn.
Netfangið mitt er drifa07@ru.is og símanúmer er 824-2743
Kveðja Drífa Baldursdóttir