July 5th, 2008
Félag fyrirburaforeldra er loksins orðið að veruleika og hefur verið formlega stofnað. Var frábær mæting á stofnfundinn og sérstaklega gaman hvað margir nýjir komu, þeas fólk sem ég þekkti ekki fyrir.
Í síðustu viku flutti ég lokaverkefnið í síðasta áfanga annarinnar og er því hálfnuð í meistaranáminu og jafnframt komin í sumarfrí frá skólanum. Búin að kynnast fullt af frábærum konum í skólanum og maður var bara pínu stoltur að sjá þessi flottu verkefni sem voru flutt. Erum allar sammála um að við séum sko flottastar og bestar þarna
Ég er byrjuð að vinna hjá Tal og búin að vera að vinna þar á kvöldin síðustu tvær vikurnar.
Búin að fá mér hjólavagn fyrir tvö börn þannig að nú get ég hjólað um bæinn með stelpurnar í vagninum. Það er alveg það dásamlegasta. Gaman, umhverfisvænt og hagkvæmt!. Afborganir af bílnum hafa hækkað, bensín hefur hækka, auk þess sem stöðumælavörður situr um götuna mína og skellir sekt á gluggann ef maður dirfist að leggja utan stæða. Þar sem stæðin eru miklu færri en íbúðirnar við götuna mína, auk þess sem starfsfólk og gestir á Grund leggja hér þá er þetta orðið ferlegt ástand. Hringsólandi eftir stæðum eða farandi út aftur til að leggja upp á nýtt ef stæði losnar. Tek ekki þátt í þessu og ætla bara að hjóla í staðinn. Fórum í hjólatúr í dag og stelpurnar alveg elska þetta og hrópa á mig að hjóla hraðar og hraðar 
Vorum annars bara að koma heim, vorum á Írskum dögum á skaganum og enduðum svo í grilli hjá Brynju systur, allar systurnar og öll börnin, voða fjör.
Kveð í bili
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 27th, 2008
Stofnfundur Félags fyrirburaforeldra verður haldinn í kvöld föstudaginn 27. júní kl. 21:00
Fundurinn verður haldinn heima hjá mér að Brávallagötu 14 í Vesturbæ Reykjavíkur og þeir sem hafa áhuga á að koma eru vinsamlega beðnir um að senda mér póst eða hringja og ég gef ykkur nánari upplýsingar þar.
Ef þið hafið áhuga á að vera með í félaginu en komist ekki í kvöld þá get ég enga að síður skráð ykkur sem félaga ef þið sendið mér bara línu með persónuupplýsingum (best að fá nafn, kennitölu, heimilsfang, síma og upplýsingar um barn/börn til að hafa sem bestar upplýsingar um alla félaga). Ég bæti ykkur þá á póstlistann okkar þannig að þið getið fylgst með framhaldinu þar. En nú þegar er kominn mjög stór hópur á póstlistann og margir félagar búnir að skrá sig og boða komu sína á fundinn.
Netfangið mitt er drifa07@ru.is og símanúmer er 824-2743
Kveðja Drífa Baldursdóttir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 17th, 2008
jibbí jei og jibbí jei það er kominn 17 júní!
Er búin að eyða alltof miklum tíma við þessa tölvu í dag. Er að gera netkönnun fyrir skólann og vinna verkefni og stússast fullt í undirbúningi fyrir fyrirburafélagið og er að skrifa fullt af stússi og svo auðvita bara að hanga og væblast líka. Er búin að senda tölvupóst út um allar trissur um allskonar hluti og uppfæra pósthólfið mitt reglulega að vonast eftir maili. Gafst loks upp þegar ég gerði mér grein fyrir að það er eflaust hæpið að fólk svari mér úr þessu. Gerði meðal annars vísindalega úttekt á tenglsum google leitarorða til mín. Hef varla litið upp úr tölvunni.
Verður kærkomið frí að sautjándajúníast eitthvað á morgun!
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 14th, 2008
kom og fór án teljandi óhappa. Enda ekkert að marka þessa hjátrú. Aldrei nokkur tíma reynst mér slæmur dagur.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 13th, 2008
Í dag er ég voða glöð í hjartanu því ég fékk jákvæð svör við atvinnuumsókn fyrir vinnu sem mig langar virkilega í
Ég vil samt ekki ljóstra neinu upp strax.
Fékk líka skemmtilega ábendingu um að mögulega væri hægt að sameina áhugamál mitt og sjálfboðavinnu við verkefni í skólanum.
Áttum fund með tengilið okkar við Alþjóðahús og erum byrjaðar að vinna verkefnið okkar og sat í tíma um verkefnastjórn. Verkefnin í skólanum eru rosalega stór og viðmikil, sérstaklega miðað við hversu stuttan tíma við höfum fram að skólalokum. En þá þarf bara að vera skipurlagðari og ganga ákveðið til verks. Mjög spennandi og skemmtilegt að fá að vinna svona verkefni. Og btw. hafð þið kynnt ykkur Alþjóðahús og hversu frábært batterí þetta er? (ps. að fá sér bjór á alþjóðahúsi er ekki það sama og að kynna sér starfsemina, taki þetta til sín sem eiga)
Þrátt fyrir að skólakortið mitt í strætó sé útrunnið og ég skilji ekki hvers vegna í ósköpunum okkur námsmönnum sé ekki útvegað nýtt kort, sérstaklega okkur sem erum í námi yfir sumartímann - þá fór ég samt heim með strætó. Eftir að hafa staðið og beðið eftir vagnininum í nokkrar mínútur uppgötvaði ég að vegna framkvæmda einhverstaðar á leiðinni var strætóskýlið lokað. Labbaði í næsta skýli að ná öðrum vagni og þurfti að bíða þar í um 25 mínútur. Varð kalt því ég var klædd eins og það væri enn sól úti - þó hún hafi horfið mörgum klukkutímum fyrr. Ef ég væri ekki svona jákvæð hefði þetta örugglega verið mjög neikvæð og bitur reynsla. En hey ekki ég, ekki í dag.
Kláraði að skrifa greinina fyrir moggann í kvöld og vantar bara að fá smá leiðsögn um hvort hún uppfylli alla staðla varðandi t.d. orðafjölda og tilvísanir áður en ég sendi hana inn. Og kannski yfirlestur? 
Jákvæðni jákvæðni.
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 12th, 2008
Litla frænka mín er í einhverskonar frístundanámskeiði núna og fór innan þess í tveggja vikna dansnámskeið. Í lok námskeiðsins á núna svo að halda sýningu og þar verða veitt verðlaun fyrir hverjir eru flottastir og bestir.
Ég er sammála mömmu hennar að mér finnst fáránlegt að þurfa alltaf hreint að vera að gera upp á milli barna á þennan hátt. Hún er 6 ára og þau eru á 2 vikna dansnámskeiði - geta ekki bara annaðhvort allir eða enginn fengið viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Eru ekki bara allir flottastir og bestir ?
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 11th, 2008

Samkvæmt mbl.is er Damien Rice að koma til landsins í lok Júlí og verður með tónleika á NASA. Ég verð að fara og sjá þennan snilling. Ég er búin að hlusta mikið á tónlistina hans undanfarin ár.
Þegar Hildur Arney var á vökudeildinni þá gerðum við huggulegt hjá henni og skreyttum með myndum, höfðum bangsa og svona hjá henni og vorum með ferðageislaspilara sem við notuðum til að spila tónlist fyrir hana. Við spiluðum stundum barnadiska með rólegum vögguvísum og fallegum sjávar og umhverfishljóðum. Við hlustuðum líka mjög mikið á Fisherman’s woman með Emilíönu Torrini og O og B-sides með Damein Rice. Þessir diskar minna okkur því mjög mikið á þennan tíma. Á kalda veturmánuði í febrúar til apríl, þegar kvöldin voru koldimm og undarleg þoka mörg kvöld þegar við keyrðum framhjá Reykjavíkurflugvelli eftir gömlu Hringbrautinni á leið upp á Stúdentagarða og án litlu stelpunnar okkar kvöld eftir kvöld.
Það þótti því við hæfi að skreyta myndbandið frá vökudeildinni með tónlist frá Damien Rice. Ég ætlaði að setja inn videoið hér, en það er ekki alveg að takast hjá mér.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 10th, 2008

Á blaðsíðu 2 í 24 stundum í dag.
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
June 9th, 2008

Sýningin Börn í hundrað ár opnaði um helgina í Safnahúsinu í Borgarnesi . Mjög skemmtileg sýnig sem höfðar líka mjög vel til barnanna. Ég, mamma og Helena vinkona fórum þangað með krakkana og þeim fannst þetta allt mjög spennandi. En sýningin er eins og nafnið gefur til kynna um börn síðustu öldina og voru til sýnis stórar ljósmyndir og allskyns munir og leikföng, gömul baðstofa eins og fólkið bjó í í gamla daga - sem okkur fannst nú eiginlega bara meira kósý heldur en nýtísku unglingaherbergið við hliðiná. Mér þætti nú ansi kósý að vera öll saman í svona herbergi
Sáum líka ljósmyndasýninguna Sjálfsmyndir unglings eftir unga stelpu úr Borgarnesi sem var mjög flott, mjög hæfileikarík stelpa þar á ferð. Tók svo bækur á bókasafninu með í nesti heim.
Við fjölskyldan eyddum helginni í Borgarnesi. Fórum í morgunmat í Skallagrímsgarði á laugardagsmorguninn og við stelpurnar í fjölskyldunni skelltum okkur svo í kvennahlaupið. Brynja systir var líka að útskrifast á laugardaginn og ég var sjálfskipuð í hlutverk ljósmyndara og elti hana hvert skref. Hún og Benedikt sameiðust svo og héldu veislu heima hjá mömmu og pabba. Eyddum svo helginni að mestu leyti bara í rólegheitum og fórum í sund og höfðum það gott. Enda alltaf svo gott að fara heim í nesið
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 6th, 2008
Ég var að byrja á mjög skemmtilegu verkefni í skólanum sem tengist Alþjóðahúsi. Mjög spennandi og verður gaman að fá að fara aðeins út úr skólastofunni og gera eitthvað áþreyfanlegt 
Ég sit núna í draslinu heima hjá mér og er að velta því fyrir mér hvernig í ósköpunum ég eigi að fara að því að undirbúa gauraafmælisveislu sem ég er búin að auglýsa að verði hér klukkan fjögur á morgun. Sérstaklega þar sem skólaslitin hjá Benedikt eru um hádegið. Hefði kannski verið sniðugt að ákveða það aðeins fyrr. En þetta verður nú svosem ekkert mál frekar en vanalega
Duglega systir mín hún Brynja er nefnilega að útskrifast á laugardaginn og því varð að halda veisluna hans Benedikts fyrir helgi. Til hamingju systa!
Benedikt og bekkurinn hans verða með skemmtiatriði á morgun á skólaslitunum og ætla að flytja fyrir okkur söng og einhver atriði. Við vorum að æfa það saman í kvöld áður en hann fór að sofa og hann kann allan textann utan að og er alveg með þetta allt á hreinu. Hlakka til að sjá hann á morgun. Ég á eftir að vera væmna mamman sem fæ tár í augun yfir dúlluskapnum. Ætla að taka videovélina með og taka upp og þá get ég svo leyft þeim að horfa á það í afmælinu. Svo ég get ég í framtíðinni verið eins og pabbar Kötu og Ingvars í mínum bekk - átt ALLT á video til minningar á hverju einasta árgangsmóti í framtíðinni. hjé hjé
Posted in Uncategorized | 1 Comment »