June 30th, 2004 — 2:36pm
Síðasta laugardag fæddist þeim Hannibal Guðmundi og Eygló Hlín lítill drengur og er hann frumburður þeirra. Drengurinn var engin smá smíði, ekki frekar en faðirinn, 52 sentimetrar og 4130 grömm. Ég óska þeim innilega til hamingju þær nafnbætur sem þau hafa nú hlotið, pabbi og mamma.
1 comment » | Uncategorized
June 29th, 2004 — 9:21pm
Nú hef ég stigið mitt stæsta skef í netheimum til þessa. Ég hef sagt skilið við gömlu blogdrive síðuna mína. Opnunin á þeirri síðu var mitt fyrsta skref inn í netheimana. En eins og flestir vita sem nota eða notað hafa blogger, blogspot eða blogdrive þá eru þessi kerfi miklum takmörkunum háð. Því tókum við okkur saman, ég, Auður Lilja, Freyr, Jakob Guðmundur, Larus Viðar og Sverrir Aðalsteinn, og stofnuðum saman okkar eigin vefkommúnu á okkar eigin léni - kommunan.is
Continue reading »
4 comments » | Uncategorized
June 28th, 2004 — 7:52pm
Það benti fátt til þess að þessi dagur í lífi tapparans á ofni þrjú yrði eitthvað frábrugðin öðrum dögum þegar hann vaknaði í morgunn. Það átti þó eftir að breytast því tign gestur boðaði komu sína í dag, degi á undan áætlun. Góð ráð voru því dýr. Rokið var upp til handa og fóta með kúst, skóflu og tusku að vopni.
Continue reading »
1 comment » | Uncategorized
June 27th, 2004 — 5:35pm
Í dag hófst fjórða törn sumarssins. Fyrstu tvær tarnirnar vann ég við útsteypingu í hringekju eitt (hringekjumeistari) og nú síðustu vann ég við rekstur á ofni eitt (skarari). Nú er hinsvegar komið að því að tappa. Í dag og næstu fimm daga mun ég bera starfsheitið tappari, nánar tiltekið tappari á ofni þrjú.
Töppunin gekk vel fyrir sig í dag. Úr ofninum töppuðus rúm 43 tonn sem er viðunandi að mínu mati. Á morgun hefur verið skipulagt ofnstopp og því ekki líklegt að mörgum tonnum verði tappað þá vaktina. Ég er bjartsýnn og horfi fram á góða törn á ofni þrjú. Það má þó gjarnan gera við loftræstinguna þar.
3 comments » | Uncategorized
June 23rd, 2004 — 8:27am
Ákvað að bæta við einni færslu, hálf kjánalegt að sjá síðuna svona auða.
Hugsanir flæða, bræða mig og mæða. En ég kem samt engu niður blað. Innihaldslaus texti. Upphefjið hann ef þið viljið. Ef heiti réttu nafni þá gerið þið það. Enginn vill vera fíflið sem gerði grín af nýju fötum keisarans. Stökkvum því um borð í bátana og róum öllum árum í átt að landi. Þar skulum við kneifa öl og kveða um böl. Í þinkunni skulum við tína söl, nei það var enginn að möl - þú er algjör kvöl.
Ég er farinn.
5 comments » | Uncategorized
June 23rd, 2004 — 8:22am
Mikið er nú gamann að tölvunördast… mikið er nú yndislega gamann að tölvunördast… mikið er nú ofboðslega yndislega gaman að tölvunördast!
Er búinn að vera að standa í breytingum á síðunni. Langar svolítið til að búa til vinstra megin. Veit einhver hvernig það að er framkvæmt?
Er að leggja af stað ti borgarir nú í þessum rituðu orðum. Ættum að hittast í kvöld og ræða málin. Það held ég.
Hvað finnst ykkur annars um nýja útlitið hjá mér? Ég tek allri gagnrýni.
Comments Off | Uncategorized
June 22nd, 2004 — 12:09pm
Eitt sinn las ég bók um Danny nokkurn Walace sem hann skrifaði um sig og fyrirbærið “join me” sem hann kom af stað. Ekki ætla ég að rekja þá sögu hér heldur minnast á Gallus, svissneskan ömmubróður Danny(s)
Continue reading »
5 comments » | Uncategorized