Konungleg heimsókn á Grundartanga
Það benti fátt til þess að þessi dagur í lífi tapparans á ofni þrjú yrði eitthvað frábrugðin öðrum dögum þegar hann vaknaði í morgunn. Það átti þó eftir að breytast því tign gestur boðaði komu sína í dag, degi á undan áætlun. Góð ráð voru því dýr. Rokið var upp til handa og fóta með kúst, skóflu og tusku að vopni.
Eins og margir vita er Hákon Mikli (Magnús) krónprins Norðmanna þessa dagana í opinberri heimsókn hér á landi. Til stóð að hann og fylgdarlið hans ásamt forseta Íslands og einkonu hans kæmu við í járnblendinu á morgun. Það kom því ekki til alveg upp úr þurru að léti sjá sig.
Verksmiðjan var þrifin hátt og lágt fyrir hina tignu gesti. Gestum var meira að segja sýnd sú virðing að lækkað var á ofnunum fyrir þá. Litlu munaði að ég, tapparinn á þrjú, hefði tekið þátt í einu af sýningaratriðunum sem gestunum var boðið upp á. Ég átti að að tappa í deiglu fyrir þau. Ég gerði það, gerði það alveg snildarlega en gestirnir voru seinir. Því kom það í hlut tappara A-vaktarinnar að leika listir sínar fyrir gestina. Ég leyfi mér að segja: “til allar hamingju”.
Einhverjum er það líklega hulið hversvegna krónprins Norðmann kýs að verja dýrmætum tíma af stuttri heimsókn sinni til Íslands í jafn skítugri og ógeðslegri rykspúandi verksmiðju og járnblendiverksmiðjan er? Svarið er einfalt. Verksmiðjan er dæmi um norsk-íslenska samvinnu.
Þegar verksmiðjan var byggð þá átti íslenska ríkið rúmann meirihluta í verksmiðjunni. Aðrir hluthafar voru Sumitomo sem er japanskt fyrirtæki og hið norska Elkem. Frá 1998 hefur Elkem átt meirihlutann í verksmiðjunni. Í dag er verksmiðjan í 100% eign Elkem. Norsk-íslenska samvinnan er því sú að við, Íslendingarnir, vinnum vinnuna en Norðennirnir hirða hagnaðinn, en hann hefur reyndar ekki verið mikill síðustu árin ef einshver.
Já enn einn magnaður dagur í járnblendinu. Þó ég hafi ekki leikið listir mínar fyrir gestina þá er nokkuð víst að þau sáu verk mitt - ég opnaði á bununa sem þau sáu.
Category: Uncategorized
June 29th, 2004 at 09:21
Jahá! þetta hljómar aldeilis spennandi