Sterk liðsheild skiptir mestu máli
Er þetta ef til vill fyrirboði um eitthvað meira? Það virðist að minnsta kosti ekki borga sig að leika einleik í Fram(sókn).
Comments Off | Uncategorized
mín orð
Er þetta ef til vill fyrirboði um eitthvað meira? Það virðist að minnsta kosti ekki borga sig að leika einleik í Fram(sókn).
Comments Off | Uncategorized
Er ekki réttast af Geir að skipa bara Jón Steinar? Annars væri hann bara undirlægja Hæstaréttar.
Undirskriftarsöfnunin útilokar Jón Steinar. Hann hlýtur að vera vanhæfur í málum sem flutt eru af þeim sem undir listann rita.
Jón Steinar er vondur. Hann er Sjálfstæðirmaður og vinur Davíðs.
Jón Steinar er frábær, vinur litla mannsins og pabbi minn.
…og ég veit ekki hvað og hvað!
Comments Off | Uncategorized
Ég hef lengi verið að velta því fyrir mér hvort að ekki sé til henntugt íslenskt orð fyrir blog. Vefdagbók er orð sem hefur verið notað en það er alls ekki þjállt.
Orðin “blogg”, “blogga” og “bloggari” virðast hafa skotið föstum rótum í málinu. Reyndar hafa þau öll verið staðfærð og falla þannig ágætlega að málinu. Ætti ég kannski að slá af þrjósku minni í leit að henntugu alíslensku orði og sætta mig við þetta?
Hafa lesendur mínir, ef einhverjir eru, einhverjar tillögur?
Þegar minnst er á bann við reykingum á kaffihúsum væla kaffihúsaeigendur og veina og segja að enginn vilji fara á reyklaus kaffihús.
Í dag fór ég á reyklaust kaffihús. Þar var fullt út að dyrum.
Mér leið vel þegar ég kom heim, enda enginn reykingastækja af mér eða fötunum mínum. Þess er óskandi að þannig væri það alltaf, sama hvaða kaffihús ég sæki.
Látlausir dagar þessir dagar. Ókrydduð tilvera. Eða hefur hún kannski verið svo vel krydduð lengi að maður er hættur að taka eftir því, svona eins og suðrænn matur?
Maður vill alltaf meira og meira krydd. Þangað til allt er svo vel kryddað að enginn vill koma í mat til manns.
Það eru draumar og tilbreytingar sem gera lífið skemmtilegt. Ég læt mig því dreyma um tilbreytingu.
Ég er kominn heim frá Köben, kom fyrir rúmri viku. Þar var ljúft að vera.
Ég styð kennara í kjarabaráttu sinni.
Að þessu sögðu má búast við að ég verði grýttur af foreldrum grunnskólanemenda ef ég hætti mér út fyrir öruggt og verndað umhverfi háskólasvæðissins. Grýttur af verslings foreldrunum sem þurfa nú allt í einu að hugsa um börnin sín. Foreldrunum sem þurfa virkilega að eyða tíma með þeim. Þvílík ósvífni í þessum kennurum að gera foreldrunum þetta. Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að foreldrum þætti eftirsóknarvert að verja tíma með börnum sínum og fylgjast með uppvexti þeirra. En nei vinnan er í fyrsta sæti.
Hvar skildi minn staður og mín stund verða… eða missti ég kannski af henni. Var það kannski þegar ég fæddist? Eitt er allavega víst að ef ég upplifi einhverntímann mína stund á mínum stað að henni verður ekki varið í lestur Morgunblaðsins.
Comments Off | Uncategorized
Sit her i fristundarrymi gistihussins Sleep-in-green i Kaupmannahofn. Hingad kom eg asamt Gudrunu Svovu sidastlidinn fostudag. Hefur dvolin her i alla stadi verid god, fyrir utan, audvitad, eina og eina hrotu sem ryfur svefninn.
En vid komum ekki hingad til ad sofa. A teim fimm dogum sem vid hofum dvalid her hofum vid gengid og hjolad vitt og breitt um borgina. I gær forum vid i hjolreidaferd til og um Dyrehaven. I dag ætlum vid ad ganga safna a milli.
I fyrradag komst eg loks til Legolands. Tad ma segja ad um nokkurskonar pilagrimaferd hafi verid ad ræda enda lek eg mer med fatt annad en Lego-kubba sem barn. Gardurinn var glæsilegur og skemmtum vid okkur vel.
Vid Kiktum til Malmø a sunnudaginn tar sem vid gengum um stræti og torg milli tess sem vid flatmogudum i grænum og gronum almenningsgordum.
Annard hafa dagarnir ad mestu leiti snuist um tad ad njota lifsins og gera tad sem vid viljum. Ein eru to vonbrigdin her - hvad bjorinn er litid odyrari en heima a klaka. Eg er hinsvegar dolfallin yfir tvi hve Danir eru duglegir ad nyta ser almenningssamgongur. Svo hef heldur aldrei sed svona mikid af fullordnu folki a hjolum - tetta er otrulegt. Ibuar Kaupmannahafnar geta svo sannarlega verid fyrirmynd fyrir okkur Reykvikinga i tessum efnum.