Fyrst þegar ég tók eftir jólaauglýsingunum núna í október þá hugsaði ég með mér: “hvur djöfullinn… alltaf byrjar þetta fyrr og fyrr”. Ætlaði svo að segja eitthvað ljótt um þessa slæmu þróun. Dró þó andann og hugasaði aðeins. Áttaði mig og ákvað að spara stóru- og ljótu orðin.
Eiríkur Hauksson og einhverjir krakkar (sem reyndar eru alveg örugglega nokkrum árum eldri en ég) sungu eitt sinn að þau vildu að alla daga væru jól. Ég söng að sjálfsögðu með, enda var þetta áður en ég áttaði mig á því hve mikið ég skerti frelsi náunga míns með söng mínum.
Við vildum öll að það væru jól alla daga þegar við vorum börn, og það vilja börn nútímans líka. Þar sem við erum svo heppin að búa við markaðshagkerfi þá eru þessar óskir ekki tilgangslausar. Þessar ótímabæru jólaauglýsingar eru aðeins viðbrögð markaðarinns við okkar óskum, sérstaklega þó barnanna.
Annar hlutur sem fólk viðrist ekki gera sér grein fyrir er sú staðreynd að það halda ekki allir jólin á sama tíma. Þannig að þarna ósýnilega enn einu sinni að grípa inn í þágu jafnréttis og reynir að gera sitt besta við að eyða þeirri mismunun sem hefur verið uppi gagnvart þeim sem ekki halda jólin í desember.
Eins og allir vita þá er markaðurinn góður og ósýnilega höndin sér öllum fyrir jafnrétti og jöfnuði. Allt þvaður um að þessi svoköllluðu “ótímabæru” jól séu runnin undan rifjum gráðugra kaupmanna er auðvitað ekkert annað en innihaldslaust þvaður.









