Það er eins og Davíð Oddson hafi skilið allt samann eftir í forsætisráðuneytinu. Hann virðist gjörsamlega hafa misst það.
Tilraun hans til þess að vera fyndinn, beinskeyttur og jafnvel móðgandi, á Alþingi gær, virðist gjörsamlega hafa mistekist. Allir keppast nú um að titla sjálfa sig “afturhaldskommatitt” eins hann Davíð okkar kallaði Samfylkinguna í gær.
Ekki er það vegna þess að menn vilji tengja sig við Samfylkinguna, heldur vegna þess að það eru næstum allir á móti því að Ísland sé á lista hinna staðföstu. Það er hlutur sem Davíð virðist ekki gera sér grein fyrir. Því verður þó ekki neitað að Davíð er staðfastur maður, staðfestu hans má jafnvel líkja við staðfestu nauts.
Davíð var einu sinni sagður hafa gott nef fyrir almenningi. Hann virðist hafa skilið lyktarskynið eftir í forsætisráðuneytinu. Haldór er sami gamli hundurinn sem eltir Davíð áfram í þeirri trú að hans lyktarskyn sé betra.
Staðreyndin er því sú að við höfum tvo gamla hunda í forystu ríkissins í utanríkismálum, hunda sem gera sér ekki grein fyrir því hvenær það er kominn tími til þess að stoppa og líta í kringum sig.
Davíð! Það er ekki í tísku að vera staðfastur… og það er ekki heldur fyndið!








