Jan 31

Þá er búið að kynna þriðju kynslóð Háskólalistans, og vonandi þá síðustu. Listinn var kynntur á Stúdentakjallaranum síðastliðið föstudagskvöl. Er skemmst að segja frá að rífandi stemmning var og komust færri að en vildu.

Að lokinni kynningu fór stór hópur Háskólalistafólks í vinnubúðir á ónefndum stað utan borgarmarkanna. Aðeins ég vissi hvert ferðinni var heitið og lét fólk því ekki fá fullkomnar upplýsingar áfangastað fyrr en komið var vel út fyrir borgarmörkin.

Við dvöldum eina nótt á þessum ónefnda stað og fór tíminn að mestu í djúpar umræður um stefnumál Háskólalistans, hagsmuni stúdenta og framtíð háskólamenntunar á Íslandi, jafnvel víðar. Er við snérum aftur til borgarinnar fylktum við liði á skrifstofu Stúdentaráðs og skiluðum inn framboði okkar.

Í dag byrjaði svo kosningabaráttan fyrir alvöru, er við hófum hina heilögu stofugöngu. Í stofugöngunni boðum við fagnaðarerindi okkar. Stofugangan mun standa í 8 daga. Fagnaðarerindið sjálft er að finna á heimasíðu Háskólalistans.

Háskólalistinn - Ef þér finnst appelsínur góðar

Jan 27

Nú er sá tími árs sem margir stúdentar gera sitt besta til þess að vera ósammála hinum. Já, það er að koma að kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þær verða daganna 9. og 10. febrúar næstkomandi. Háskólalistinn mun taka þátt í þessum leik, eins og tvö undanfarin ár. Sumir segja að allt sé það er þrennt er. Ef svo er þá ætti okkur að takast ljúka þessum kjánalega leik í ár, og leggja niður Háskólalistann í framhaldi. Vonandi.

Háskólalistinn mun kynna framboðslista sinn á Stúdentakjallaranum á morgun klukkan 20. Þar munu tveir nafntogaðir einstaklingar kynna listann með tilþrifum. Að því loknu munum við öll hverfa út í sortann og aka út í buskann.

Og meðan ég man… Háskólalistinn hefu veitt heimasíðu sinni andlitlyfitingu. Þar ríkir nú málfrelsi í formi athugasemdakerfis.

Jan 25

Ég held að ég hafi einhvertímann áður lýst yfir vanþóknun minni á millibilsástandi.

Núna er millibilsástand á öllum þeim gönguleiðum sem ég geng um dagsdaglega. Það er hvorki snjór né auð jörð. Það er flughált, helvítis, svell sem er fljótandi í vatni. Stundum er maður feginn að vera ekki belja, nógu erfitt er samt að komast leiða sinna.

Jan 20

Í dag varð mér ljós ástæðan fyrir áramótaheitum mínum var. Þetta var svo augljóst þegar ég loksins kom auga á það. Ég vil verða eins og Auður Lilja. Hún hefur bæði lesið Höfund Íslands og gefið blóð. Ætli næstu ármótaheit verði að verða barnshafandi og eignast eiginmann sem heitir Freyr?.

Þegar ég skoða þetta betur verður þetta enn skýrara. Hún er stjórnmálafræðingur, ég er að læra að verða stjórnmálafræðingur. Hún var oddviti Háskólalistans fyrir tveimur árum, ég var oddviti í fyrra. Þetta er alveg skuggalegt, og ég gerði mér ekki grein fyrir þessu fyrr en í dag. Það er svo sem ekki leiðri að líkjast.

Jan 20

Ég hef ekki oft sett mér áramótaheit en gerði það um síðustu áramót, reyndar tvö. Ég hét því að gefa blóð í Blóðbankanum og klára að lesa Höfund Íslands sem nú er búin að lifa af ansi margar bækur á náttborðinu hjá mér.

Í gær uppfyllti ég annað heitið að hálfu. Ég heimsótti í blóðbílinn. Þar sem þetta var mín fyrst heimsókn gaf ég aðeins nokkur sýni til rannsóknar, til að ganga úr skugga að ég væri hæfur til blóðgjafar. Þetta var engu að síður fyrsta skrefið í átt að uppfylltu heiti. Heitið verður væntanlega að öllu uppfyllt eftir 2-3 vikur.

Ég var ekki sá eini sem hafði lofað blóði mínu. Mig rámar í að Lárus nokkur hafi einnig gefið slíkt loforð. Ég skora því á Lalla að láta hendur standa fram úr ermum.

Höfundur Íslands er hins vegar kominn ansi neðarlega í bókastaflann á náttborðinu. Ég ætti kannski að klára þann stafla áður en ég bæti við?

Jan 18

Í dag komu upp aðstæður sem ollu mér mikilli streytu. Allar dyr virtust lokaðar, nei það var hreinlega búið að steypa upp í þær. Svo allt í einu hrundu allir veggir. Þvílíkur léttir. Mig langaði mest að hlaupa út og í kringum húsið þangað til ég gæti ekki meira. Fara þá úr öllum fötunum, og velta mér upp úr snjónum.

Ég gerði það samt ekki

Jan 14

Í gærkvöldi kl. 20.00 var kosningamiðstöð Háskólalistans opnuð en hún er til húsa að Eggertsgötu 24, öllum hæðum, fyrir ofan og allt í kring um 10-11. Við opnunina var starfsemi félagsins kynnt og boðið upp á veitingar. Allir þeir stúdentar sem hafa áhuga að starfa með framboðinu á komandi vikum voru boðnir velkomnir. Húsfyllir varð, veitngar kláruðust og færri komust að en vildu.

Miðstöðin verður opin allann sólarhringinn og eru allir áhugasamir velkomnir.

Jan 11

Það virðist vera útséð með það að Guðrúnu Svövu á ekki að takast að gera mig að snjóbrettakappa. Allar tilraunir okkar og áform á síðastliðnum tveimur árum til þess að brettast hafa ýmist fokið út í veður og vind, orðið að engu eða bæði. Tilraun gærdagsins var kæfð í fæðingu, fauk út í veður og vind og varð að engu.

Við gefumst þó ekki svona auðveldlega upp og munum reyna aftur í vikunni.

Jan 11

Mikið yrðu öll ferðalög einfaldari og þægilegri ef það væri hægt að kúka í flösku.

Jan 7

Ef ég ætti Queen lagið I want to break free í fórum mínum hefði það án efa hljómað um stúdentagarðanna í allt kvöld.

Ryksugan hefur verið á fullu að éta drullu á milli þess sem ég hef strokið ryk blíðlega með dúnmjúkum tuskum. Uppþvottabursta hefur einnig verið sveiflað sem og ýmsum öðrum hreinlætistólum.

Brátt mun heimur minn anga af hreinlæti.

« Previous Entries