Feb 28

Vegir flestra virðast liggja út fyrir landsteinana. Einhverra hluta vegna virðast mínir vegir ekki liggja svo langt þessa daganna. Hér hef ég reyndar nóg fyrir stafni og því engin ástæða til þess að hætta sér yfir hafið.

Draumaheimurinn verður því að vera vettvangur ferðalaga minna enn um sinn. Þar get ég ferðast hvert sem er.

Feb 26

Gærkvöldið var hálfgerð kvöl. Ég satt einn heim og glápti út loftið á meðan allir skemmtilegu stúdentarnir heltu sig fulla.

Mér leið á tímabili eins og ég væri lokaður inn á stofnun, hvítir veggir og hvítt loft var það eina sem sem ég á meðan raddir fjörugra stúdenta ómuðu í höfðinu á mér eins og bergmál úr fortíðinni.

Feb 25

Ég hef tekið eftir því að sumir eiga greiðari aðgang að vefkerfi- og póstlista Háskóla Íslands umfram aðra.

Dæmi um þetta er að reglulega fæ ég tölvuskeyti í gegnum umrætt vefkerfi frá félagi kristilegra stúdenta. Ég veit hinsvegar til þess að félag trúlausra stúdenta hefur ekki fengið aðgang að þessu umrædda póstlista til þess að auglýsa viðburði sem það stendur fyrir.

Í dag fékk ég skilaboð þar sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg buðu mér á málfund á Hótel Sögu. Þetta er ekki fyrsti pósturinn sem ég fæ frá SVS og Varðberg í gegnum vefkerfi Háskóla Íslands. Ég hef hinsvegar aldrei fengið skeyti frá Samtökum herstöðvarandstæðinga eftir þessari leið.

Mér finnst algjörlega óeðlilegt að pólitísk samtök, hvaða nafni sem þau nefnast, skuli hafa aðgang að vefkerfi- og póstlita Háskóla Íslands. Það er hinsvegar eðlilegt að öll nemendafélög skólans hafi aðgang að póstlistanum til þess að geta auglýst þá viðburði sem þau standa fyrir.

Feb 25

Í einhverju aðgerðalausu tómi áðan kveikti ég á sjónvarpinu og renndi í gegnum stöðvarvarnar. Rúv, Skjár einn, stöð 2, Popp tíví, ekkert sem vakti áhuga minn. Þegar ég að lokum skipti á Sýn glennti ég upp augun. Þar var kona að dansa magadans og á veggnum bakvið hana stóð „Framsóknarflokkurinn, fyrir fólkið í landinu”. Næst steig svo á svið danshópur frá Tælandi, og þar næst frá Búlgaríu.

Já börnin góð nú er það ljóst, ég mun liggja fyrir framan sjónvarpið alla helgina og fylgjast með beinni útsendingu frá flokksþingi Framsóknarflokksins. Annars er það að frétta af þeim ágæta flokki að fimmta framsóknarfélagið í Kópavogi var stofnað í gær.

Feb 24

Ég hitti Hannibal á förnum vegi í morgun. Úr varð að hann bauð mér heim á bæ í kaffi og þáði ég það með þökkum. Kaffið var yndislegt og meðlætið guðdómlegt.

Heima á bæ hjá þeim hjúum, Hannibal og Eygló, var ásamt þeim tæplega átta mánaða sonur þeirra, Bóas Orri. Ég verð að játa að ég hef sjaldan séð jafn myndarlegt og vel uppalið barn, enda varla við öðru að búast undan þeim hjúum.

Ég finn mig knúinn til þess að hrósa þeim hjúum opinberlega fyrir vel unnið verk. Það er alveg ljóst hvert ég mun sækja ráð þegar ég verð kominn út í uppeldisbransann. Þau eru svo sannarlega komin á stall með Drífu.

Feb 24

Í kvöld mun körfuknattleiksmaðurinn Elías leika sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja félag, Ármann/Þrótt. Leikurinn verður á móti hans gömlu félögum í KFA(ÍA) og hefst klukkan 19:15 í Laugadalshöllinni.

Sjálfur hyggst ég mæta og fylgjast með Elíasi stíga sín fyrstu spor í nýjum búning og ég hvet alla til þess að gera hið sama.

Feb 22

Til sölu:

48 klósettrúllur í pakka á 2500 krónur.
24 eldhúsrúllur (húsbréf) í pakka á 2500.
Báðir pakkarnir saman seljast á 4000 krónur.

Henson íþróttajakkar á 4400 krónur (smásöluverð er 8800).
Henson flíspeysur á 3990. (viðbót: þessar peyrur eru aðeins í kvennsniði)

Hagnaðurinn af þessari sölu rennur allur í útskriftarferðarsjóð Guðrúnar Svövu. En hún ásamt hollsystrum sínum hjúkrunarfræðinni eru að safna fyrir ferðalagi til og um Tæland í lok maí. Áhugasamir eru skulu leggja fram bókun.

Feb 22

Í dag spurði ég herra Politcal Campass hvar ég stend í pólitík. Svona svaraði hann mér. Mér sýnist ég jaðra við það að vera anarkisti. Þið hin getið svo heimsótt herra Political Compass hérna og spurt hann spjörunum úr.

Feb 21

Hvar er þessi andi sem allir eru alltaf að tala um að komi yfir sig? Á ég bara að bíða eftir honum? Mér þykir ég vera búinn að bíða ansi lengi. Ég held að ég nenni því ekki lengur. Ég sæki hann bara og treð honum ofan í mig, yfir mig og allt í kring.

Þá er bara spurning um það hvar ég á að hefja leitina?

Feb 20

Í dag gengum við, Annas, Silja, Sverrir og ég, á Esjuna, snæddum á Vitabar, fórum í sund, fengum okkur ís og kíktum svo í heimsókn til Óla Gneista.

Við gerðum þetta allt í einni samfellu, frá morgni til kvölds þar sem hver þáttur tók við af öðrum. Hvergi dauð stund. Nú sit ég einn fyrir framan tölvuna og segi heiminum sögu mína áður en ég leggst í rúmið og sofna.

« Previous Entries