Archive for March 2005


Dekurdagar

March 27th, 2005 — 11:30am

Lífið leikur en við mig hérna á Akranesi. Hér er hugsað um mig eins og hefðarmann, það liggur við að ég sé mataður, svo vel er hugsað um mig.

1 comment » | Uncategorized

Páskafrí

March 24th, 2005 — 11:07pm

Það er gott að komast í frí öðru hvoru. Nú er það Páskafrí. Kirkjan klikkar ekki á því að sjá okkur fyrir fríum, rétt eins og óvinsæl ríkistjórn boðar skattalækanir.

En þó að ég fari í frí þá stöðvast ekki heilastarfsemin hjá mér. Ég held hreinlega að sú sé raunin með þá sem hanga þessa stundina á Reykjarvíkurflugvelli og bíða eftir Bobby. Ég á ekki til orð!

Ég reyni þó að leiða þessa séríslensku hegðun hjá mér og reyni að njóta dvalarinnar á Leynisbrautinni. Mikið er það alltaf gott að sækja þau mömmu og pabba heim.

Comments Off | Uncategorized

Opinber stefnumótun

March 18th, 2005 — 6:44pm

Í kvöld hefur verið auglýst mikið skrall hjá stjórnmálafræðinemum, þó er ekki víst að margir bíti á agnið. En það er ekki vegna þess að agnið sé ekki freistandi.

Stjórnmálafræðiskor virðist hafa tekið þá opinberu stefnu að halda stjórnmálfræðinemum frá félagslífi og áfengi um helgar.

Það er óneitanlega nokkuð sniðugt að stefnutækið sem þeir beita er heimapróf í opinberri stefnumótun. Prófið hófst núna klukkan 18 og skal skilað fyrir 22 á morgun.

Það eru því engar líkur á því að ég fari út í kvöld. Stefnan virðist því hafa skilað þeim árangri sem henni var ætlað að ná, að minnsta kosti hvað mig varðar. Ég hef reyndar ekki en gert ábata- og nytjagreiningu á henni, en mér þykir þó ljóst að hún muni skerða tekur vínveitinga manna nokkuð.

Comments Off | Uncategorized

Hugmynd fyrir Markús

March 16th, 2005 — 11:18pm

Ég er enginn aðdáandi raunveruleikasjónvarps. Reyndar skil ég á engan hátt tilgang sumra þáttanna sem heyra undir þennan flokk sjónvarpsefnis. Engu að síður hef ég hugmynd að einum slíkum.

Þegar kemur að næstu stóru ráðningu hjá hinu opinbera ætti RÚV að grípa tækifærið og óska eftir því að sjá um ráðningaferlið í formi raunveruleikasjónvarps.

Efnistök þessara þátta yrðu auðvitað misjöfn eftir því hvaða stöðu er verið að ráða í, en það má taka Apprentice þættina til fyrirmyndar. Í stað stjórnarinnar í þeim þáttum kæmi útvarpsráð. Önnur hugmynd gæti verið að hafa símakosningu í anda ædol, en hún er líklega of lýðræðisleg.

Eftir allt dramað sem verið hefur í kringum síðustu stóru stöðuveitingar hins opinbera þarf ekki að efast um að slíkir þættir eigi eftir að slá í geng hjá aðdáendum veruleikasjónvarps.

Comments Off | Uncategorized

Brrrr…

March 14th, 2005 — 9:05pm

Óskaplega var kalt þegar ég staulaðist í skólann klukkan átta í morgun, ég hreinlega fraus inn að merg. Ekki bætti úr skák að mér hafði varla komið dúr á auga alla nóttina eftir óhóflega trúarástundun til heiðurs Kaffi.

Ég var þó ekki sá eini sem upplifði andvökunótt. Á meðan ég spilaði internet-kotru af kappi voru þau Auður Lilja og Freyr upptekin við að eignast sitt fyrsta barn.

Út úr Auði kom víst snotur og pen stúlka. Ég óska þeim hjúum að sjálfsögðu innilega til hamingju með frumburðinn.

Comments Off | Uncategorized

Lélegur hórumangari?

March 13th, 2005 — 8:56pm

Í gærkvöldi var ég í hlutverki hórumangarans og hafði eina „hóru” á mála hjá mér. Ég veit ekki hvort það var eigingirni eða lélegt viðskiptavit sem réði því að ég fór sjálfur heim með henni, líklega var það þó ást. Ég hef sennilega, og líklega sem betur fer, ekki lifað mig nógu vel inn í hlutverkið.

Útlitslega séð vorum við Guðrún Svava þó alveg einstaklega sannfærandi sem hóra og hórumangari. Þrátt fyrir að okkur hafi tekist nokkuð vel að útbúa okkur í þessi hlutverk þá vil ég biðja fólk um að velja annað „þema” næst þegar það býður mér í þess háttar teiti. Mér líkar það nefnilega illa að kalla kærustuna mína „hóru”.

Að lokum vil ég koma á framfæri þökkum til Braga fyrir að lána mér vinnufötin sín.

1 comment » | Uncategorized

Borgaraleg skylda?

March 12th, 2005 — 12:47am

Stundum er það hreinlega ekki svo slæmt að sitja einn heima hjá sér á föstudagskvöldi. Meira að segja hlakkar í mér þegar sauðdrukkið fólkið silast fram hjá íbúðinni minni og út í óvissu næturinnar. Veit það hvað bíður þeirra? Ég mun vakna kokhraustur og til í tuskið í fyrramálið, en þau hvað munu þau geta, ha?

Annars þykir mér það hálfskrítið þegar fólk lítur á það sem borgaralega skyldu sína að fara út á „lífið” á föstudagskvöldum. Fólk verður jafnan hneykslað þegar ég segist ætla að vera heima, rétt eins og ég hafi brotið lög.

Ég neita því þó ekki að mér þykir það gaman að kíkja í nokkra bjóra á föstudagskvöldi, en lít ekki á það sem skyldu mína. Á morgun(í kvöld) verður hinsvegar gaman.

Comments Off | Uncategorized

Hóra og hórumangari

March 11th, 2005 — 12:45pm

Á morgun er okkur Guðrúnu Svövu boðið í teiti með því alltof algenga og frekar heimskulega þema „hóra og hórumangari”. Hvað um það, við erum hvorki hrædd við tísku né heimsku og ætlum því að taka þátt í leiknum.

Eitt vefst þó fyrir okkur. Hvernig setur jafn virðulegt fólk eins og við upp ásjónu hóru og hórumangara? Hvernig fatnað kalla þessi hlutverk yfirleitt á? Erum við að tala um staðalímýndir úr amerískum kvikmyndum? Hvað á ég að miða við? Er einhver þarna út sem vill lána vinnufötin sín? Á einhver leðurbuxur? Á einhver háhæla karlamannsskó? Á einhver brilljantín?

Af spurningum á ég nóg, en svörin skortir mig. Nú vantar mig aðstoð ykkar, ábendingar og svör kæra, klára og fallega fólk.

4 comments » | Uncategorized

Nei því miður… þú ert kona

March 9th, 2005 — 2:11am

Samkvæmt frétt sem ég las á fréttavef Ríkisútvarpsins er kynbundinn launamunur á Íslandi meiri en annarsstaðar á evrópska efnahagssvæðinu. Ég vissi að ástandið væri slæmt hér, en ekki svona slæmt. Stöndum við í alvöru rómönsku þjóðunum að baki?

Þetta á auðvitað ekki að koma mér óvart. Í hverjum kjarasamningum á fætur öðrum eru kvennastéttirnar sviknar um eðlilega leiðréttingu launa sinna.

Leikskólakennarar, grunnskólakennarar og hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægustu störfunum þjóðfélagsins. Laun þeirra eru engu að síður töluvert lægri en hjá öðrum stéttum með svipaða menntun. Þessar þrjár stéttir eru að mestu skipaðar konum.

Það er sorglegt að fylgjast með því aftur og aftur þegar kvennastéttunum er neitað um eðlileg laun fyrir störf sín og í samræmi við menntun. Nú síðast var kröfum grunnskólakennara hafnað á þeim forsendum að ekki væri til peningur til þess að borga þeim laun.

Ef við höfum ekki pening til þess að tryggja æsku landsins grunnmenntun, höfum við þá efni á einhverju? Já, svo virðist vera. Akranesbær, eitt af þeim sveitafélögum sem ekki hafði efni á að hækka laun grunnskólakennarar, ætlar, svo dæmi sé tekið, að byggja svokallað „fjölnota íþróttahús” fyrir 200-300 miljónir króna. Svona er forgangsröðunin, sparkvöllur tekin fram yfir menntun.

Það er tímabært að þjóðin taki höndum saman og hreinsi þennan skammarstimpil, sem ég vísaði til í upphafi, af sér og vinni markvist að því að tryggja konum laun til jafns við karla.

3 comments » | Uncategorized

Ugla sat á kvisti…

March 8th, 2005 — 9:18am

Á fimmtudaginn verður rektorskjör við Háskóla Íslands. Ég stend frammi fyrir vali um fjóra einstaklinga sem ég veit lítið sem ekkert um. Í því ljósi verða mér ljósar þær fyrirfram gefnu skoðanir sem ég geng jafnan með mér inn í kjörklefann.

Í þetta skiptið verð ég að byggja ákvörðun mína nær eingöngu á þeim áróðri sem frambjóðendurnir fjórir halda upp að mér og öðrum kjósendum. Ég þarf því að leggja nokkuð verk á mig til að vega og meta frambjóðendurna fjóra.

Ég hef alltaf verið efins um það að kjósa eftir stefnum, frá þeim er auðvelt að víkja þyki það nauðsynlegt. Því ætla ég að leita eftir þeirri grundvallarhugmyndafræði sem frambjóðendurnir byggja á og kjósa eftir því. Menn víkja ekki svo auðveldlega þeim.

Nú ætla ég að leggjast undir feld og hefja samanburðinn. Ég hvet alla til að gera slíkt hið sama, og mæta svo á kjörstað á fimmtudaginn og kjósa rektor að vel íhuguðu máli.

2 comments » | Uncategorized

Back to top